Þetta er í fyrsta sinn sem 911 kemur í hybrid útfærslu og er óhætt að segja að James sé ánægður með útkomuna.
Til að undirbúa sig fyrir átökin nældi hann sér m.a. í gamlan kappakstursleik fyrir Playstation sem innihélt Ascari brautina og æfði sig heima enda er mikilvægt að vinna heimavinnuna sína fyrir svona akstur.
„Það sem ég tók eftir í 911 T-hybrid er að það er ekkert „lagg“ í túrbínunni þannig að þegar þú stígur á bensíngjöfina þá ríkur bíllinn strax af stað. I love 911!,“ sagði James meðal annars eftir þetta skemmtilega ævintýri.
