„Þetta er ótrúlega tilfinningarík stund fyrir mig af því að True Detective: Night Country var geðveik lífsreynsla,“ sagði Foster meðal annars í ræðu sinni. Um var að ræða hennar fyrstu Emmy verðlaun en fjórðu tilnefningu. Þar þakkaði hún Issa López leikstjóra þáttanna sérstaklega fyrir áður en hún vék sér að íslenska teyminu.
„Takk fyrir!“ sagði leikkonan á íslensku áður en hún þakkaði svo meðleikkonu sinni Kali Reis fyrir ferðalagið. Hún talaði svo um frumbyggja Alaska og sagðist vera þeim þakklát fyrir að hafa sagt framleiðendum þáttanna frá sögum þeirra og menningu.
Eins og alþjóð veit voru þættirnir teknir upp á Dalvík og í Reykjavík í janúar í fyrra. Foster hefur allar götur síðan talað um Ísland af mikilli hlýju og sagði meðal annars í samtali við blaðamann Vísis þegar þættirnir voru frumsýndir fyrr á þessu ári að hún saknaði landsins mikið.
Jodie Foster wins lead actress in a limited anthology series or movie at the 2024 #Emmys for #TrueDetective: Night Country pic.twitter.com/aQdAg0jFOR
— The Hollywood Reporter (@THR) September 16, 2024