Loftárásir Ísraelsmanna héldu áfram á Beirút, höfuðborg Líbanon í nótt og í morgun. Árásirnar voru gerðar á svæði í borginni sem er þekkt sem vígi Hezbollah samtakanna.
„Þetta var ógnarnótt. Eina lausnin er að árásum linni eins fljótt og auðið er,“ segir Maxime Jawad, íbúi í Beirút.
Hörmuleg nótt
„Hvers á fólkið að gjalda? Og þessi börn sem dóu? Við stöndum uppi allslaus, við höfum ekkert. Ekkert, engin hús, engar búðir, alls ekkert,“ segir Denise Matar, íbúi í Beirút.
„Þetta var hörmuleg nótt, hún var mjög erfið. Allir í Beirút heyrðu allt. Þeir sem búa nær og þeir sem eru enn í úthverfunum standa auðvitað frammi fyrir enn meiri hörmungum,“ segir Haytham Al-Darazi, íbúi í Beirút.
Skólahaldi frestað
Ástandið er sagt aldrei hafa verið jafn slæmt síðan átökin hófust. Menntamálaráðherra Líbanon gaf það út í dag að upphafi skólaárs verði frestað vegna öryggisógnar í landinu.
Nítján ára lögreglufulltrúi var drepin og fjölmargir særðust í skotárás á strætóstoppistöð í Ísrael. Lögreglu grunar að um hryðjuverk hafi verið að ræða og hefur árásarmaðurinn verið drepinn.
Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum á Gasasvæðinu létust minnst tuttugu og sex lífið í loftárásum Ísraelsmanna á mosku og skóla á svæðinu í nótt. Ísraelsher sagði að skotum beggja árása hafa verið beint að Hamasliðum en í frétt AP segir að ekki hafi fengist sönnun fyrir því.