Útlit er fyrir éljagang á Norðurlandi í dag, en smálægðin sem valdið hefur snjókomu á suðvesturhorninu í morgun ætti að færast suður með hádeginu, að sögn veðurfræðings. Eftir hádegi ætti því að vera orðið þurrt á höfuðborgarsvæðinu, en áfram verður éljagangur á Norðurlandi fram eftir degi.
Þannig að hérna á suðvesturhorninu þá ætti þetta ekki að hafa teljandi áhrif á umferð eða hvað?
„Ekki eins og þetta lítur út núna. Þetta er frekar hófleg snjókoma og ólíklegt að þetta setjist á vegi,“ segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni.
Hlýnar með helginni
Næstu daga sé útlit fyrir fremur svalt og úrkomulítið veður á landinu.
„Á morgun er úrkomulítið á landinu, víða þurrt og bjartviðri á Suður- og Vesturlandi og frekar svalt. En á laugardaginn gæti snjóað eitthvað aftur á vesturhluta landsins en þá verður aftur á móti líklega bjart og fallegt veður á austanverðu landinu. Á sunnudaginn fer líklega heldur að hlýna,“ segir Birgir.
Veðurhorfu á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Norðvestan 10-18 m/s, en hægari vestanlands. Bjart með köflum, en stöku él á Norður- og Austurlandi og einnig við vesturströndina um kvöldið. Hiti um eða rétt yfir frostmarki að deginum.
Á laugardag:
Fremur hæg breytileg átt, en norðvestan 8-15 austantil fram eftir degi. Slydda eða snjókoma með köflum vestanlands, annars víða bjartviðri. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag:
Breytileg átt 3-10 og bjart með köflum, en stöku skúrir eða él vestantil. Heldur hlýnandi.
Á mánudag:
Vaxandi austanátt sunnanlands og hlýnar, rigning eða slydda með köflum þar síðdegis. Hægari vindur fyrir norðan, yfirleitt þurrt og áfram svalt í veðri.
Á þriðjudag:
Suðaustan- og austanátt og rigning með köflum. Hiti 3 til 9 stig.
Á miðvikudag:
Breytileg átt og allvíða rigning.