„Það hefur mikill fjöldi komið að máli við mig. Það hefur verið ákall eftir því að málefni launafólks komist á dagskrá Alþingis. Rödd launafólks þarf að heyrast og hafa áhrif á okkar samfélag. Ég er iðnaðarmaður og þar er ákall um að okkar rödd heyrist og sé sterk,“ segir Kristján Þórður í samtali við fréttastofu.
Hann segir ekki liggja fyrir hvort hann muni, ef til þess kemur, verða á lista í Reykjavík suður eða norður. Það sé uppstillinganefndar að eiga við.
„Þetta kemur bratt til vegna þeirra aðstæðna sem nú eru uppi. Því hefur þetta gerst mjög hratt en þessi félagspólitík sem maður hefur starfað í á undanförnum árum hefur ýtt manni út í að velta þessum málum fyrir sér og að hafa meiri áhrif á samfélagið.“
Kristján segir að Samfylkingin hafi að undanförnu unnið markvisst að því að tengjast verkalýðshreyfingunni og hann ítrekar að miklu skipti að tengsl við hinn almenna launamann verði aukin. Og til þess horfi hann. Þó uppstillinganefnd sé að störfum þá er ljóst að einhver barátta verði um sætin en hvernig hún fari fram er óljóst.
„Sko, nú fer þetta í hendur annarra að stilla upp á lista. Maður þarf að sjá hvað setur en margir horfa til þessara hluta. En ég tel tímapunktinn þannig að það þurfi að styrkja enn þessar tengingar.“