„Það verður helvíti erfitt að hlæja ekki þegar þú ert með einstaklinga eins og Sveppa, Hjöbba og Önnu Svövu þarna,“ segir Auddi í samtali við Vísi.
Þátturinn á erlenda fyrirmynd í Suður-Kóreu og í Noregi. Þar er fókusað á smærri hóp þar sem einn keppandi dettur út í einu. Í þætti Audda og félaga er mun stærri hópur að keppa og nýr hópur kemur inn í hverjum þætti allt þar til í lokaþættinum þegar sigurvegarar úr hverjum þætti mætast.
Alls ekki fjölskylduþáttur
„Ég dýrkaði þetta, en ætti að taka fram að þetta er ekki fjölskylduþáttur. Því þegar þú ert kominn með fimm grínista við borðið þá þarf að grafa djúpt til þess að sjokkera liðið og það er grófur talsmáti, það er alveg ljóst, þannig það er möst að við markaðssetjum þetta ekki fyrir krakkana,“ segir Auddi hlæjandi.

Meðal matarboðsgesta Audda í þetta skiptið eru meðal annars Hjörvar Hafliðason, Sigrún Ósk, Eva Ruza og Steindi jr. svo fáeinir séu nefndir í hinum 25 manna hópi. Hann segir að um sé að ræða fyrsta skiptið sem hann hafi fengið að sjá grínista í sínum rétta gír í sjónvarpi.
„Ég hef verið viðloðinn fjölmiðla í mörg ár og ég held þetta sé barasta í fyrsta sinn sem þú sérð fólkið í sínum rétta gír, eins og þau séu með vinum sínum í matarboði að reyna að vera fyndin og ég dýrkaði það. Þetta var ekki eins og að mæta í FM95Blö eða einhvern annan sjónvarpsþátt, það voru allir í geggjuðum gír þarna og ég hló ekkert eðlilega mikið.“
Þættirnir verða frumsýndir á Stöð 2 15. nóvember næstkomandi.