Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að fordæmalausar aðstæður hafi skapast á Vestfjörðum síðustu daga vegna mikillar úrkomu sem hafi orsakað fjölda aurskriða sem hafi fallið úr fjallshlíðum, meðal annars á vegi.
Haukur Sigurðsson ljósmyndari tók myndbandið við Eyrarhlíð nærri Hnífsdal þar sem stór skriða fór yfir veginn þriðjudaginn 12. nóvember.
„Myndirnar tala sínu máli en í myndbandinu er rætt við Sigurð Guðmund Sverrisson, yfirverkstjóra hjá Vegagerðinni á Ísafirði og Gunnar Má Jónsson, verktaka. Gunnar segist aldrei hafa séð annað eins á sínum ferli, og Sigurður segir aðstæður erfiðar, enda sífellt að bætast við spýjur úr hlíðinni.
Skemmdir hafa orðið á vegriðum en ekki er ljóst hvort vegurinn sjálfur hafi orðið fyrir tjóni. Það mun koma í ljós á næstu dögum. Vegagerðin fylgist vel með þróun mála,“ segir á vef Vegagerðarinnar.





