Á þeim tíma verði hægt að afla gagna og upplýsinga um reynslu af þjónustu skyndimóttöku og vinna að frekari þróun verkefnisins í samvinnu við þjónustuveitendur bráða- og samdægursþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Skýrslan er hér.
Samkvæmt mati starfshópsins þurfa allt að 20.000 einstaklingar á höfuðborgarsvæðinu samdægursþjónustu árlega sem „oftast krefst myndgreininga, blóðrannsókna eða meðferðar með lyfja- eða vökvagjöf í æð en eru ekki taldir þurfa sérhæfða þjónustu Landspítala, innlagnar eða eftirlits yfir nótt”.
Áverkar eða bráð veikindi
Í skýrslu starfshópsins er lögð áhersla á að sjúklingahópurinn sem til greina kæmi að þjónusta á slíkri skyndimóttöku séu einstaklingar sem þurfa samdægursþjónustu að halda sem gæti krafist myndgreininga, blóðrannsókna, lyfja- eða vökvagjöf í æð en eru ekki taldir þurfa sérhæfða þjónustu sem kallar á innlögn eða eftirlit yfir nótt. Komuástæður hópsins væri hægt að flokka í tvo flokka, áverka og bráð veikindi. Starfshópurinn bendir á að forðast þurfi skörun við þjónustu sem þegar er veitt annars staðar, svo sem á heilsugæslustöðvum eða Læknavakt.
Starfshópurinn leitaði til Landspítala og heilsugæslu um mat á slíku verkefni. Af hálfu Landspítala kom fram að núverandi álag á bráðamóttökunni væri einkum tilkomið vegna sjúklinga sem bíða þar eftir að geta lagst inn á deildir spítalans. Opnun skyndimóttöku myndi ekki leysa þann vanda. Fulltrúar Læknavaktar og heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu töldu hættu á því að opnun sjálfstæðrar skyndimóttöku myndi auka flækjustig þjónustunnar og ef til kæmi þyrfti áður að tryggja heildstæða vegvísun fyrir sjúklinga.
Gæti leitt til frekari mönnunarvanda á bráðamóttöku
Í skýrslunni er jafnframt bent á að mikið álag á starfsfólk bráðamóttöku Landspítalans hafi leitt til alvarlegs mönnunarvanda á deildinni sem í dag er mestur meðal sérfræðilækna í bráðalækningum. Mikilvægt sé að leita allra leiða til að forðast frekara brottfall heilbrigðisstarfsmanna í bráðaþjónustu. Liður í því geti verið að tryggja starfsfólki tækifæri til að vinna að minnsta kosti hluta vinnu sinnar á starfsstöðvum þar sem minna álag er en við núverandi aðstæður á bráðadeild G2. Aukið hlutfall vakta á bráða- og göngudeild G3, við fjarskiptalækningar eða á hugsanlegri skyndimóttöku gætu verið mögulegar leiðir til þess. Raunverulegar úrbætur séu hins vega háðar því að fækka verulega einstaklingum sem dvelja á bráðamóttökunni í bið eftir innlögn á legudeildum Landspítalans.
Stjórnendur Landspítala telja umtalsverða hættu á því að opnun skyndimóttöku myndi auka enn á mönnunarvanda bráðamóttöku spítalans.