Það kastaðist í kekki í Katar og er Verstappen ósáttur með það hversu hart Russell gekk fram í þeirri tilraun sinni að láta Verstappen verða refsað eftir tímatökur á laugardaginn síðastliðinn.
Svo fór að Verstappen, sem setti hraðasta tíma tímatakanna, var að lokum refsað fyrir að hafa ekið óþarflega hægt fyrir lokahring tímatakanna og missti hann þar með sæti sitt á ráspól.
Áður en að keppnisstjórn tók ákvörðun um að refsa Verstappen mættu bæði Hollendingurinn og Russell til fundar og kváðu svo dómararnir upp dóm sinn. Russell fékk ráspólinn í stað Verstappen og sá síðarnefndi er ekki ánægður með framgöngu Bretans.
Þrátt fyrir refsinguna bar Verstappen sigur úr býtum í Katar og eftir keppnina lýsti hann skoðun sinni á refsingunni.
„Ég trúði þessu ekki. En á sama tíma er fátt sem er farið að koma mér á óvart í þessum heimi sem við lifum í,“ sagði Verstappen í viðtali. „Ég er ekki ánægður með þennan dóm.“
Hann lýsti furðu sinni á því sem að fór fram á fundinum með keppnisstjórn.
„Ég varð fyrir vonbrigðum vegna þess að ég tel alla ökuþórana hér bera mikla virðingu fyrir hvor öðrum. Ég hef oft setið svona fundi en á öllum mínum ferli hef ég aldrei séð neinn reyna að henda öðrum jafn harkalega fyrir rútuna og þarna. Hvað mig varðar hef ég misst alla virðingu fyrir honum.“
Aðeins ein keppnishelgi er eftir á Formúlu 1 keppnistímabilinu. Verstappen hefur nú þegar tryggt sér heimsmeistaratitil ökuþóra en baráttan er enn mikil í keppni bílasmiða þar sem að aðeins 21 stig skilur að McLaren og Ferrari og 44 stig að hámarki í boði fyrir liðin í lokakeppninni í Abu Dhabi.