Lögreglan á Suðurnesjum vekur athygli á erfiðri færð á Reykjanesbrautinni auk þess sem mikil hálka er á veginum.
„Færðin er farin að spillast og mikil hálka á brautinni. Í augnablikinu eru viðbragðsaðilar að vinna á 4 vettvöngum á Reykjanesbraut. Ekki er vitað um slys á fólki þar sem þetta er bara að gerast í þessum töluðu orðum. Endilega farið varlega og þeir sem enn eru á sumardekkjum eiga ekki erindi á Reykjanesbrautina eins og er,“ segir í tilkynningu.
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir með suðaustan hríðarveðri fyrir sunnan, suðvestan, vestan og suðaustanvert landið með versnandi akstursskilyrðum. Hellisheiði, Þrengsli, Mosfellsheiði, Lyngdalsheiði og Krýsuvíkurvegur hafa verið settir á óvissustig vegna veðurs til klukkan 23 í kvöld og gæti þurft að loka fyrir umferð með stuttum fyrirvara.