Menning

Geir og Arnaldur í fang­brögðum á toppnum

Jakob Bjarnar skrifar
Bóksölulistinn að þessu sinni er sérstakur. Yfirleitt hefur Arnaldur verið á toppi bóksölulistans og þá verið að kjást við drottningu glæpasögunnar, hana Yrsu Sigurðardóttur en nú er kominn nýr keppinautur til skjalanna. Sjálfur Geir H. Haarde með ævisögu sína.
Bóksölulistinn að þessu sinni er sérstakur. Yfirleitt hefur Arnaldur verið á toppi bóksölulistans og þá verið að kjást við drottningu glæpasögunnar, hana Yrsu Sigurðardóttur en nú er kominn nýr keppinautur til skjalanna. Sjálfur Geir H. Haarde með ævisögu sína. vísir/vilhelm

Vísir birtir, í samstarfi við Félag íslenskra bókaútgefenda, fyrsta bóksölulista ársins. Hann endurspeglar að þessu sinni sölu íslenskra bóka í nóvember.

Sjá má nokkur veðrabrigði á nýjum lista frá því sem verið hefur undanfarin ár. Dyggir lesendur Arnaldar Indriðasonar fylgja honum óhikað frá morðmálum til fagurbókmenntaverksins Ferðaloka sem situr á toppi Bóksölulistans, lang söluhæsta bók nóvember mánaðar, að sögn Bryndísar Loftsdóttur framkvæmdastjóra Fíbút.

Glíman milli skáldsagna og ævisagna spennandi í ár

Þá segir Bryndís Geir H. Haarde gera vel að koma bók sinni, Ævisögu alla leið upp í annað sæti listans. Hann skýtur sjálfum forsetanum, Ólafi Ragnari Grímssyni ref fyrir rass, en Ólafur Ragnar sendi frá sér bókina Þjóðin og valdið - Fjölmiðlalögin og Icesave.

Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda sendir frá sér fyrsta sölulista ársins. Jólabókaflóðið getur nú loks farið að bára eftir kosningafár sem gripið hefur landsmenn.vísir/vilhelm

„Þetta er líklega fyrsta jólabókavertíð Geirs en þó ekki jómfrúarbók hans því eftir hann liggur þýðing frá árinu 1978 á Öld óvissunnar eða The age of uncertainty eftir John Kenneth Galbraith. Önnur nöfn á topp 10 listanum hafa öll verið þar áður, Yrsa, Birgitta, Stefán Máni, Óttar, Hallgrímur, Bjarni og Eva Björg en bækur þeirra Stefáns Mána og Evu Bjargar hafa líklega aldrei farið jafn vel af stað í nóvember og í ár.“

Spurð hver hafi helst komið á óvart það sem af er vertíð segir Bryndís að of snemmt sé að segja til um hver verði „svarti foli“ þessara bókajóla.

„En þetta er gott bókaár og spennandi að sjá glímuna milli skáldverkahöfunda annars vegar, með Arnald í brjósti fylkingar og kanónur eins og Hallgrím Helgason, Guðrúnu Evu Mínervudóttur og Jón Kalmann með sér í liði gegn glæpasagnahöfundunum Yrsu, Stefáni Mána, Evu Björg og Ragnari Jónassyni.“

Lína og Trölli koma sterk inn á sviðið

En yfir í aðra sálma, það gleður Bryndísi mjög að sjá útgefendur missi ekki kjarkinn við útgáfu eldri barnabóka, þrátt fyrir neikvæð sjónarmið einstakra lesenda um boðskap þeirra og efnistök.

„Lína langsokkur hefur að undanförnu þurft að horfast í augu við syndir föður síns, eins og gerist og gengur. Þessi vera hans í Suðurhöfum var líklega ekki til stakrar fyrirmyndar. Sterkasta stelpa í heiminum heldur þó sínu striki og í ár fáum við sögu sem ekki hefur áður komið út á íslensku, Lína bjargar jólunum. Sagan birtist fyrst í sænsku tímariti árið 1949 og var enduruppgvötuð upp úr síðustu aldamótum. Hún var þó ekki prentuð í bókarformi í Svíþjóð fyrr en í fyrra og því mikið fagnaðarefni að hún skuli strax vera komin út í íslenskri þýðingu.“

Það gleður framkvæmdastjóra Fíbút mjög að sjá þessar klassísku barnabækur endurútgefnar.

Og Bryndís nefnir til sögunnar aðra sígilda jólabók sem nýverið hefur verið endurútgefin en það er Þegar Trölli stal jólunum eftir Dr. Seuss í þýðingu Þorsteins Valdimarssonar.

Sú bók kom fyrst út í íslenskri þýðingu hjá Erni og Örlygi fyrir 50 árum síðan, árið 1974, en líkt og Lína bjargar jólunum, þá birtust frumdrög kvæðisins um Trölla fyrst í tímariti árið 1955. Það kom svo út í endanlegri mynd hjá Random House árið 1957.

„Það ætti ekkert barn að vaxa úr grasi án kynna við eftirfarandi jólabækur, Jólin koma eftir Jóhannes úr Kötlum, Jól í Ólátagarði (fáanleg í stórbókinni Líf og fjör í Ólátagarði) og Lína bjargar jólunum eftir Astrid Lindgren, þegar Trölli stal jólunum eftir Dr. Seuss og Jólin okkar eftir Brian Pilkington,“ segir Bryndís.


Bóksölulistinn nóvember 2024

  1. Ferðalok - Arnaldur Indriðason
  2. Ævisaga - Geir H. Haarde
  3. Ég læt sem ég sofi - Yrsa Sigurðardóttir
  4. Lára fer á fótboltamót - Birgitta Haukdal
  5. Dauðinn einn var vitni - Stefán Máni
  6. Útkall í ofsabrimi - Óttar Sveinsson
  7. Sextíu kíló af sunnudögum - Hallgrímur Helgason
  8. Orri óstöðvandi - Heimsfrægur á Íslandi - Bjarni Fritzson, myndh. Þorvaldur Sævar Gunnarsson
  9. Kvöldið sem hún hvarf - Eva Björg Ægisdóttir
  10. Atli eignast gæludýr - Birgitta Haukdal
  11. Fíasól í logandi vandræðum - Kristín Helga Gunnarsdóttir, myndh. Halldór Baldursson
  12. Hulda - Ragnar Jónasson
  13. Bókajóladagatal barnanna - Ýmsir höfundar, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  14. Í skugga trjánna - Guðrún Eva Mínervudóttir
  15. Stella segir bless - Gunnar Helgason
  16. Lína bjargar jólunum - Astrid Lindgren, þýð. Silja Aðalsteinsdóttir
  17. Himintungl yfir heimsins ystu brún - Jón Kalman Stefánsson
  18. Prumpulíus brelludreki - Kai Lüftner, myndh. Wiebke Rauers
  19. Stóra brauðtertubókin - Ýmsir höfundar
  20. Bakað með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal og Sylvía Haukdal

Skáldverk

  1. Ferðalok - Arnaldur Indriðason
  2. Ég læt sem ég sofi - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Dauðinn einn var vitni - Stefán Máni
  4. Sextíu kíló af sunnudögum - Hallgrímur Helgason
  5. Kvöldið sem hún hvarf - Eva Björg Ægisdóttir
  6. Hulda - Ragnar Jónasson
  7. Í skugga trjánna - Guðrún Eva Mínervudóttir
  8. Himintungl yfir heimsins ystu brún - Jón Kalman Stefánsson
  9. Jólabústaðurinn - Sarah Morgan,þýð. Birgitta Hassell og Marta Magnadóttir
  10. Jólabókarleitin - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
  11. Ég færi þér fjöll - Kristín Marja Baldursdóttir
  12. Hittu mig í Hellisgerði - Ása Marin
  13. Hjartabein - Colleen Hoover, þýð. Sunna Dís Másdóttir
  14. Synir himnasmiðs - Guðmundur Andri Thorsson
  15. Myrku frúrnar - Ann Cleeves, þýð. Ragnar Hauksson
  16. Speglahúsið - Benný Sif Ísleifsdóttir
  17. Morðin á heimavistinni - Lucinda Riley, þýð. Arnar Matthíasson
  18. Hundrað dagar í júlí - Emelie Schepp, þýð. Friðrika Benónýsdóttir
  19. Hildur - Satu Rämö, þýð. Erla Elíasdóttir Völudóttir
  20. Svikaslóð - Ragnheiður Jónsdóttir

Fræðbækur og rit almenns efnis

  1. Ævisaga - Geir H. Haarde
  2. Útkall í ofsabrimi - Óttar Sveinsson
  3. Stóra brauðtertubókin - Ýmsir höfundar
  4. Ullaræði: Villahullu 2 - Heli Nikula, þýð. Guðrún Hannele Henttinen
  5. Ég átti að heita Bjólfur - Æskuminningar - Jón Ársæll Þórðarson
  6. Öxin, Agnes og Friðrik - Síðasta aftakan á Íslandi - Magnús Ólafsso
  7. Ennþá fleiri Pabbabrandarar 3 - Þorkell Guðmundsson
  8. Þjóðin og valdið - Fjölmiðlalögin og Icesave - Ólafur Ragnar Grímsson
  9. Í veiði með Árna Bald - Árni Baldursson
  10. Ég skal hjálpa þér - Saga Auriar - Herdís Magnea Hübner
  11. Til taks - Þyrlusaga Landhelgisgæslu Íslands - Benóný Ásgrímsson, Júlíus Ó. Einarsson og Páll Halldórsson
  12. Frasabókin – ný og endurbætt íslensk snjallyrði - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  13. Almanak Háskóla Íslands 2025 - Gunnlaugur Björnsson og Páll Jakobsson
  14. Börn í Reykjavík - Guðjón Friðriksson
  15. Fræ - Arna Engilbertsdóttir, myndir Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir
  16. Duna - Saga kvikmyndagerðarkonu - Kristín Svava Tómasdóttir og Guðrún Elsa Bragadóttir
  17. Þrútið var loft og þungur sjór - Steinar J. Lúðvíksson
  18. Óvæntur ferðafélagi - Eiríkur Bergmann
  19. ADHD í stuttu máli - Edward M.Hallowell, þýð. Nanna Rögnvaldardóttir
  20. Strá fyrir straumi - Ævi Sigríðar Pálsdóttur - Erla Hulda Halldórsdóttir

Barna- og ungmennabækur

  1. Lára fer á fótboltamót - Birgitta Haukdal
  2. Orri óstöðvandi - Heimsfrægur á Íslandi Bjarni Fritzson, myndir Þorvaldur Sævar Gunnarsson
  3. Atli eignast gæludýr - Birgitta Haukdal
  4. Fíasól í logandi vandræðum - Kristín Helga Gunnarsdóttir, myndir Halldór Baldursson
  5. Bókajóladagatal barnanna - Ýmsir höfundar, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  6. Stella segir bless - Gunnar Helgason
  7. Lína bjargar jólunum - Astrid Lindgren, þýð. Silja Aðalsteinsdóttir
  8. Prumpulíus brelludreki - Kai Lüftner, myndir Wiebke Rauers
  9. Bakað með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal og Sylvía Haukdal
  10. Bluey 5-mínútna sögur - Joe Brumm, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  11. Þegar Trölli stal jólunum - Dr. Seuss, þýð. Þorsteinn Valdimarsson
  12. Verstu skrímsli í heimi - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson
  13. Hvolpasveitin: Voff-voff björgunartæki - Keith Chapman, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  14. Jólaföndur leikja- lita- og límmiðabók - Ýmsir höfundar
  15. Bluey - ömmur - Joe Brumm, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  16. Ævintýri Orra og Möggu – Glæponar - Bjarni Fritzson, myndh. Þorvaldur Sævar Gunnarsson
  17. Vörubílar og vinnuvélar - Örn Sigurðsson
  18. Risaeðlugengið 6: Leyndarmálið - Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer
  19. Ævintýri Orra og Möggu - Ótrúleg uppátæki - Bjarni Fritzson, myndir Þorvaldur Sævar Gunnarsson
  20. Gleðilega jólahátið, þrautabók - Elizabeth Golding, myndir Dean Gray

Uppsafnað frá áramótum

  1. Ferðalok - Arnaldur Indriðason
  2. Hildur - Satu Rämö, þýð. Erla Elíasdóttir Völudóttir
  3. Ævisaga - Geir H. Haarde
  4. Lára fer á fótboltamót - Birgitta Haukdal
  5. Lykillinn - Kathryn Hughes, þýð. Ingunn Snædal
  6. Fóstur - Claire Keegan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
  7. Ég læt sem ég sofi - Jussi Adler-Olsen, þýð. Jón St. Kristjánsson
  8. Sjö fermetrar með lás - Hallgrímur Helgason
  9. Sextíu kíló af sunnudögum - Hallgrímur Helgason
  10. Dauðinn einn var vitni - Stefán Máni
  11. Gervigul - R.F. Kuang, þýð. Ingunn Snædal
  12. Útkall í ofsabrimi - Óttar Sveinsson
  13. Orri óstöðvandi - Heimsfrægur á Íslandi - Bjarni Fritzson, myndir Þorvaldur Sævar Gunnarsson
  14. Kvöldið sem hún hvarf - Eva Björg Ægisdóttir
  15. Atli eignast gæludýr - Birgitta Haukdal
  16. ADHD fullorðinna - Bára Sif Ómarsdóttir
  17. Bókajóladagatal barnanna - Ýmsir höfundar, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  18. Fíasól í logandi vandræðum - Kristín Helga Gunnarsdóttir,myndir Halldór Baldursson
  19. Litlir lærdómshestar - Stafir - Elisabeth Golding, þýð. Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
  20. Amma slær í gegn - Gunnar Helgason, myndir Rán Flygenring





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.