Jóladrottningin stal senunni Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 6. desember 2024 09:03 Um 300 manns mættu í frumsýningarteiti hljómsveitarinnar HúbbaBúbba í Kolaportinu á dögunum. Berglaug Petra Húsfyllir og rífandi stemning var í frumsýningarteiti hljómsveitarinnar Húbba Búbba sem fór fram í Kolaportinu á dögunum. Þar frumsýndu þeir tónlistarmyndband við lagið JólaHúbbaBúbba, þar sem hin margrómaða jóladrottning, Svala Björgvins, stal senunni frá strákunum, eins og henni einni er lagið.
Hljómsveitina skipa tvíeykið, Eyþór Aron Wöhler og Kristal Máni Ingason, sem hafa vakið ótrúlega athygli á samfélagsmiðlum undanfarið, ekki síst á TikTok. Myndbandið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: JólaHúbbaBúbba Lagið er eitt af þremur á nýrri smáskífu dúósins, tvö með Svölu og það þriðja með Karlakór Kjalnesinga. „Við ákváðum að keyra vel á þetta fyrir þessi jól. Hljómsveitin var stofnuð fyrr á þessu ári þannig það má segja að þetta séu fyrstu jól okkar Kristals saman. Við urðum þess vegna að fá Svölu með okkur í lið, enda er hún náttúrulega jólageitin. Flestir hlusta auðvitað á þessi gömlu klassísku jólalög og þá var eiginlega óhjákvæmilegt að leita til alvöru reynslubolta til þess að ná í gegn og vonandi ná að festa lögin í sessi um jólin hjá fjölskyldum landsins. Sumir eru nefnilega þreyttir á Mariuh Carey, þó það eigi reyndar ekki við um mig,“ sagði Eyþór í samtali við Vísi á dögunum. Þeir félagar ætla svo að fylgja plötunni eftir í desember. Félagi þeirra tónlistar- og knattspyrnumaðurinn Logi Tómasson betur þekktur sem Luigi verður með tónleika í Gamla bíó þann 22. desember þar sem HubbaBubba kemur fram. Berglaug Petra Garðarsdóttir ljósmyndari var á svæðinu og myndaði stemninguna. Berglaug Petra Garðarsdóttir Berglaug Petra Garðarsdóttir Berglaug Petra Garðarsdóttir Berglaug Petra Garðarsdóttir Berglaug Petra Garðarsdóttir Berglaug Petra Garðarsdóttir Berglaug Petra Garðarsdóttir Berglaug Petra Garðarsdóttir Berglaug Petra Garðarsdóttir Berglaug Petra Garðarsdóttir Berglaug Petra Garðarsdóttir Berglaug Petra Garðarsdóttir Berglaug Petra Garðarsdóttir Berglaug Petra Garðarsdóttir Berglaug Petra Garðarsdóttir Berglaug Petra Garðarsdóttir
Samkvæmislífið Tónlist Jól Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða: Gjafabréf á gjafabréf ofan Jól Opið bréf til jólasveinanna: Góð ráð og hugmyndir í skóinn Jól Ófarir á jóladagsnótt: „Hann nær í nál og tvinna og saumar nokkur spor í rassinn á mér“ Jól „Ég hlakka til að sýna henni litla landið mitt“ Jól Helvítis jólakokkurinn: Reyktur göltur í Bolabaði Jól Jóladagatal Vísis: Langstærsti smellur Þórunnar Antoníu Jól Mikilvægt að opna sig Jól Jóladagatal Vísis: Það þarf fólk eins og Má Jól Eins og gangandi diskókúla Jól Óhefðbundin jól í Chile: „Vorum þvílíkt klár í jólin en þau ætluðu aldrei að byrja“ Jól