Um er að ræða 136 fermetra íbúð á þriðju og efstu hæð í nýlegu fjölbýlishúsi. Íbúðin skiptist stofu, borðstofu og eldhús sem flæða saman í eitt með fallegu parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á yfirbyggðar svalir til vesturs. Samtals eru fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Arnar greiddi 101 milljón fyrir eignina.

Arnar bjó áður á Arnarnesi í Garðabæ með fyrrverandi eiginkonu sinni, Kristínu Björg Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Fyrirtækja og fjárfesta hjá Íslandsbanka. Húsið var selt á 210 milljónir.
Arnar og Kristín skildu í apríl 2022 eftir um átta ára hjónaband. Saman eiga þau tvö börn. Fyrir átti Arnar stúlku og dreng.