Snorri, sem er kominn í hátíðarskap, lýsir sjálfum sér gjarnan sem besta píanóleikara í heimi en í fréttatilkynningu segir:
„Tónleikagestir ljómuðu á þessum töfraviðburði og féllust í faðma að tónleikum loknum. Enn einu sinni tókst Snorra að toppa sig á tónleikum og er löngu búinn að sanna að hann sé sá allra besti píanóleikari sem sést hefur fyrir framan píanó.“

Hér má sjá Snorra Ásmundsson spila á píanóið:
Hér má sjá stemninguna hjá Snorra:
Snorri Ásmundsson hefur vakið athygli í listheiminum í áraraðir fyrir litaglöð málverk sín og hans mjög svo einstöku gjörninga. Þá vakti miklar eftirtektir þegar hann lék á píanó í bústað sendiherra Íslands í Austurríki fyrir rúmum tveimur árum síðan.
Hann var viðmælandi í Vísis þættinum Kúnst árið 2022 þar sem hann sagði meðal annars að líf hans væri meira og minna einn stór gjörningur.