Aðskildar frá fjölskyldunni og fluttar til Venesúela ekki Sýrlands Tómas Arnar Þorláksson skrifar 11. desember 2024 19:08 Ríma Charaf Eddine Nasr og Noura Nasr frá Sýrlandi. Vísir/Bjarni Margmenni kom saman á Skúlagötu þar sem kærunefnd útlendingamála er til húsa til að mótmæla yfirvofandi brottvísun systra sem komu hingað til lands til að flýja borgarastyrjöld í Sýrlandi. Systurnar verða aðskildar frá fjölskyldu sinni og segir eldri systirin það blendnar tilfinningar að hafa fengið viðurkenningu frá forsetanum á dögunum áður en henni verður vísað úr landi.
Systurnar Ríma Charaf Eddine Nasr og Noura Nasr frá Sýrlandi fengu þær fréttir fyrir rúmlega mánuði síðan að senda ætti þær úr landi. Þær verða þó ekki sendar til Sýrlands heldur til Venesúela. Systurnar hafa átt heima hér í um eitt ár og átta mánuði en fjölskylda þeirra hefur búið hér í um fimm ár. Ríma segir að um mikið áfall sé að ræða. Heimildin greindi fyrst frá. „Þegar ég fékk fréttirnar fyrst, að það ætti að vísa mér úr landi. Ég fann ég ekki fyrir neinu. Þú veist, þegar þú er í það miklu áfalli þá grípur heilinn inn í til að verja þig. Hann byrjar að segja: Já, þetta er allt í lagi, það er bara verið að flytja mig úr landi. Núna er ég að vakna upp við vondan draum, ég er að fara. Við erum báðar að fara og hvað gerum við nú?“ Óttast það að flytja til Venesúela Ríma fæddist í Venesúela en hefur búið allt sitt líf í Sýrlandi og óttast það að vera flutt til Venesúela þar sem hún hafi engin tengsl og sé ekki örugg. Erfitt sé að þurfa kveðja fjölskylduna sem verði áfram á Íslandi. „Faðir minn, móðir mín, eldri systir mín og eiginmaður hennar. Litli frændi minn sem er minn ára og bróðir minn.“ Systir Rímu og Nouru til vinstri og Móðir þeirra til hægri. Vísir/BJarni Noura tekur undir orð Rímu og segir að í fyrsta sinn á ævi sinni hafi henni liðið eins og hún væri örugg á Íslandi. „Það eina sem ég vil er að vera hér og búa með fjölskyldunni minni. Ég er búin að vera reyna að gera það í fjögur ár. Að koma hingað og vera með fjölskyldunni.“ „Lét eitthvað gott af mér leiða“ Ríma hlaut á dögunum viðurkenningu sem einn af mest framúrskarandi ungu Íslendingunum á þessu ári. Viðurkenninguna hlaut hún fyrir sjálfboðastarf sitt í þágu Rauða krossins og félagasamtakanna Læti!/Stelpur rokka! og var viðurkenningin afhent af Höllu Tómasdóttur forseta. Verðlaunin eru á vegum Íslandsdeildar alþjóðlegu ungmennahreyfingarinnar JCI. Vísir/BJarni „Ég fann fyrir smá frið innra með mér, jafnvel ef ég fer, þá að minnsta kosti líður mér eins og ég lét eitthvað gott af mér leiða. Ég gerði vel.“ Missir ómissandi starfsmann Esther Ýr Þorvaldsdóttir, framkvæmdastýra Læti/Stelpur rokka! og skipuleggjandi mótmælanna, segir mikinn missi að þeim systrum. Ríma sé í raun ómissandi starfskraftur. „Þetta er gjörsamlega fyrir neðan allar hellur. Ég skil ekkert í þessu, við skiljum ekkert í þessu. Ég veit ekkert hvað ég á að gera ef hún fer. Ég leitaði og leitaði og leitaði og síðan kom hún inn í líf mitt og náði að fylla þessa stöðu og það eru ekki margir sem geta gert það.“ Læti!/Stelpur rokka hefur sett af stað fjáröflun fyrir systurnar og er að hægt að leggja þeim lið með því að millifæra á reikningsnúmerið: 301-26-700112 og kennitölu: 700112-0710. Esther segir fjáröflunina mikilvæga til að tryggja öryggi þeirra þegar út til Venesúela er komið. Esther Ýr Þorvaldsdóttir, framkvæmdastýra Læti/Stelpur rokka!Vísir/Bjarni
Flóttafólk á Íslandi Hælisleitendur Sýrland Venesúela Mest lesið Synir konunnar lýsa andláti hennar sem létti Innlent Ikea sakað um grænþvott: „Slökkvið á myndavélunum“ Erlent „Það er ekkert drama í þessu – ég rýk ekkert á dyr“ Innlent Daníel fær 24 ára dóm til viðbótar fyrir barnaníð Erlent Þau vilja taka við af Helga Grímssyni Innlent Eiga yfir höfði sér dauðadóm fyrir að hylja ekki hár sitt Erlent Vonbetri eftir daginn í dag Innlent Öskraði þegar hann var leiddur í dómsal Erlent Síðastliðin tvö ár verið „alveg skelfileg“ Innlent Tveir fréttamenn RÚV söðla um Innlent Fleiri fréttir Síðastliðin tvö ár verið „alveg skelfileg“ Gera hlé á leitinni í Tálknafirði Hellti bensíni og bar eld að bílum í Kópavogi Tveir fréttamenn RÚV söðla um Svæðisskipulag fyrir Suðurhálendi Íslands til 2042 Framúrskarandi Íslendingur sendur úr landi Stjórnarmyndun og íbúi ósáttur vegna stanslausra framkvæmda Vonbetri eftir daginn í dag Leita einstaklings í Tálknafirði Efling lætur ekki af aðgerðum á meðan SVEIT endurskoðar samning Synir konunnar lýsa andláti hennar sem létti „Það er ekkert drama í þessu – ég rýk ekkert á dyr“ SVEIT endurskoðar kjarasamning við Virðingu Telja sólarorku ekki vera auðlind Framlengja gæsluvarðhald vegna árásar á Vopnafirði Enginn skilningur á alvarleika málsins hjá SVEIT Viðgerð hafin og enn allt keyrt á varaafli í Vík Verkefni næstu ríkisstjórnar flóknara en áður var útlit fyrir Verri afkoma ríkissjóðs ekki gott veganesti fyrir næstu stjórn Þau vilja taka við af Helga Grímssyni Fimmtungur veitingastaða sem Efling sendi bréf hefur sagt sig úr SVEIT Mega hafa einn sundlaugarvörð á vakt í Vík í Mýrdal Stærstu og umdeildustu sigrar ársins Ríkur vilji til að styðja áfram við bakið á Úkraínu Líkamsárásir, þjófnaðir og rúðubrot Níræður maður og nýbakaður tvíburafaðir duttu í lukkupottinn Auglýstu á samfélagsmiðlum fyrir 45 milljónir Óánægja í Laugarneshverfi: „Við ráðum ekki við þetta ægivald“ Viku frestur til að kæra kosningarnar Innan við þriðjungur þingmanna hefur setið lengur en eitt kjörtímabil Sjá meira