Helena Ósk Einarsdóttir, starfsmaður Fjallkonunnar, birti mynd á TikTok af leikaranum á veitingastaðnum.
Við færsluna skrifaði hún „mesta dúllurassgat sem ég hef hitt á ævi minni“. Á myndinni má sjá Garfield klæddan í rauða húfu, gráan trefil, bleikan vindjakka og rautt vesti innan undir honum.
Watch on TikTok
Hinn 41 árs gamli Andrew Garfield hefur getið sér gott orð í Hollywood og verið tvisvar tilnefndur til Óskarsverðlauna. Sennilega þekkja flestir hann sem Peter Parker í tveimur myndum um köngulóarmanninn en hann lék einnig í The Social Network og Hacksaw Ridge.
Nýjasta mynd leikarans er rómantíska dramað We Live in Time sem kom út fyrr á árinu þar sem hann lék á móti Florence Pugh.
„Ég verð á Íslandi yfir áramótin“
Fréttir af veru Garfield á Íslandi ættu ekki að koma dyggum áhorfendum The Graham Norton Show á óvart. Í síðustu viku greindi leikarinn frá því í þættinum að hann ætlaði að vera yfir áramótin á Íslandi.
Ástæðan fyrir því að Garfield greindi frá þessum plönum sínum var að íslenska súperstjarnan Laufey Lín var líka í þættinum og flutti þar jólalagið „Christmas Magic“.