Sport

Barðist við brjósta­krabba­mein allt tíma­bilið en lét það ekki stoppa sig

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Gabriela Dabrowski dreifði bleikum boltum til áhorfenda áður en greindi frá brjóstakrabbameininu.
Gabriela Dabrowski dreifði bleikum boltum til áhorfenda áður en greindi frá brjóstakrabbameininu. Clive Brunskill/Getty Images

Gabriela Dabrowski vann til verðlauna á Ólympíuleikunum og þrjú risamót í tvíliðaleik. Hún endaði árið á gullmedalíu á WTA lokamótinu og greindi svo frá því að hún hefði glímt við brjóstakrabbamein allt keppnistímabilið 2024.

„Ég veit að þetta mun vera sjokk fyrir marga, en ég er í lagi og mun verða í lagi,“ skrifaði Gabriela í Instagram færslu þar sem hún sagði frá krabbameininu.

Hún fann hnúð í vinstra brjósti vorið 2023, en var ráðlagt af lækni að hafa ekki áhyggjur. Það var ekki fyrr en tæpu ári síðar sem læknir á vegum tennissambands kvenna (WTA) ráðlagði henni að fara í myndatöku.

Þar fannst krabbamein og hún hefur síðan gengist undir tvær aðgerðir, en aldrei tekið sér frí frá tennisvellinum. Hún ákvað að gangast ekki undir fleiri aðgerðir þrátt fyrir ráðleggir lækna, svo hún gæti spilað á Wimbledon og Ólympíuleikunum í sumar.

Á ÓL keppti hún fyrir Kanada og vann silfur í tvíliðaleik kvenna ásamt Erin Routliffe og brons í blönduðum flokki ásamt Felix Auger Aliassime.

Felix og Gabriela á Ólympíuleikunum í París í sumar.Daniela Porcelli/Eurasia Sport Images/Getty Images

Undir lok árs stóð hún uppi sem sigurvegari á WTA lokamótinu í Sádi-Arabíu. Meðan mótinu stóð, áður en hún tilkynnti um krabbameinið, dreifði hún bleikum tennisboltum til áhorfenda til að vekja athygli á brjóstakrabbameini.

„Ef þú tókst eftir því að ég brosti meira en vanalega síðustu sex mánuði, þá var það ekta bros. Það hefur ekki alltaf verið þannig. Þó ég hafi unnið markvisst að því síðustu ár að bæta viðhorfið inni á vellinum var það ekki fyrr en ég greindist með krabbamein sem ég gerði raunverulegar breytingar. Þegar ég sá fram á að tapa öllu sem ég hafði lagt svo hart að mér til fá, það var ekki fyrr en þá að ég fór að meta það sem ég átti.“

„Við krabbamein segi ég: Fokkaðu þér, en líka, takk“ skrifaði Gabriela að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×