Hersir tilkynnti fréttirnar á Instagram með myndaröð frá Tansaníu þar sem fjölskyldan ver hátíðunum.
Á einni myndinni er storkur og segir í færslunni: „Sáum storkinn í dag, sem er viðeigandi þar sem hann kemur til okkar í byrjun júlí 👶 Ógleymanleg jól og áramót í frábærum hóp í Tansaníu“.
Þau Hersir og Rósa eru bæði 31 árs gömul og verður þetta þeirra fyrsta barn.
Sérfræðingur í fjárfestingum og aðstoðarmaður formannsins
Hersir sem er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands hefur verið aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar frá 2020 þegar hann fyllti í skarð Svanhildar Hólm sem hætti til að taka við starfi framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands.
Hersir starfaði áður sem blaðamaður hjá Morgunblaðinu, síðar á fréttastofu Stöðvar 2 auk þess að vera einn þáttastjórnenda Íslands í dag.
Rósa er með meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Hún starfar sem sérfræðingur í framtaksfjárfestingum hjá sjóðnum. Hún kom þangað 2022 frá Akta sjóðum þar sem hún starfaði sem yfirlögfræðingur, regluvörður og áhættustjóri.
Sjá einnig: Dagur í lífi Rósu
Áður starfaði Rósa hjá Kviku banka og sem framkvæmdastjóri lánasjóðsins Framtíðarinnar. Rósa er einnig ein stofnenda Fortuna Invest, fræðsluvettvangs um fjárfestingar, og meðhöfundur bókarinnar Fjárfestingar, að því er segir í tilkynningu frá VEX.