Sport

Svarar æfum De Decker: „Verður að komast ofar á heimslistann“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nathan Aspinall er einn þeirra átta heppnu sem keppa í úrvalsdeildinni í pílukasti 2025.
Nathan Aspinall er einn þeirra átta heppnu sem keppa í úrvalsdeildinni í pílukasti 2025. getty/James Fearn

Nathan Aspinall hefur svarað gagnrýni Mikes De Decker um að hann hafi ekki átt skilið að vera valinn til að keppa í úrvalsdeildinni í pílukasti.

Aspinall var í hópi þeirra átta sem voru valdir til að spila í úrvalsdeildinni 2025. De Decker var hins vegar ekki valinn og í viðtali við Het Nieuwsblad í Belgíu lét hann gamminn geysa. 

De Decker sagði að það væri skandall að hann hefði ekki hlotið náð fyrir augum forráðamanna úrvalsdeildarinnar þrátt fyrir að hafa unnið Grand Prix stórmótið. Hann skaut líka á Aspinall og Gerwyn Price sem voru valdir til að keppa í úrvalsdeildinni. Hann sagði að Aspinall hefði eingöngu verið valinn því hann er með skemmtilegt inngöngulag.

Aspinall hefur nú brugðist við gagnrýni De Deckers. Hann sagðist finna til með honum en bætti við að slakur árangur hans á HM hefði eflaust haft áhrif á að hann hefði ekki verið valinn.

„Sagði hann þetta? Ég hef ekki séð það því ég er hættur á samfélagsmiðlum. Ég er enn með aðganga en er ekki virkur því áreitnin var orðin fáránleg. Ég er vonsvikinn að hann hafi sagt þetta því okkur Mike kemur vel saman. En ef hann vill komast inn verður hann að komast ofar á heimslistann,“ sagði Aspinall.

„Hann má vera svekktur því hann vann stórmót en hann er númer 24 á heimslistanum og datt snemma út á HM. Það voru margir sem komu til greina en enginn stóð upp úr. Ég taldi helmingslíkur á að ég kæmist inn en er í skýjunum að hafa verið valinn og hlakka til að byrja.“

Auk Aspinalls og Price taka heimsmeistarinn Luke Littler, Luke Humphries, Michael van Gerwen, Rob Cross, Stephen Bunting og Chris Dobey þátt í úrvalsdeildinni 2025.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×