Dómur þess efnis var kveðinn upp síðdegis. Dómurinn hefur nú verið birtur og hann má lesa hér. Dómurinn er mjög ítarlegur og telur einar 107 blaðsíður. Samandregnar niðurstöður dómsins eru þær að hafna kröfu um ógildingu leyfir Fiskistofu vegna byggingar Hvammsvirkjunar en ógilda heimild Umhverfisstofnunar til breytingar á vatnshlotinu Þjórsá1, frá 9. apríl 2024, vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Hvammsvirkjun og ákvörðun Orkustofnunar 12. september 2024 um að veita Landsvirkjun leyfi til að reisa og reka raforkuverið Hvammsvirkjun.
Þá voru íslenska ríkið og Landsvirkjun dæmd til að greiða stefnendum óskipt alls 3,6 milljónir króna í málskostnað.
Landeigendur höfðuðu málið
Þann 13. september í fyrra gaf Orkustofnun út virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá.
Samkvæmt dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur voru það þau Brynhildur Briem, Hannes Þór Sigurðsson, Jón Benjamín Jónsson, Kristjana Ragnarsdóttir, Örn Ingi Ingvarsson, Ólafur Arnar Jónsson, Renate Hannemann, Sigrún Jakobsdóttir, Úlfhéðinn Sigurmundsson og Þóra Þórarinsdóttir sem stefndu íslenska ríkinu og Landsvirkjun til ógildingar leyfisins, auk félaginu Ölhóli ehf.
Leyfi áður fellt úr gildi
Leyfið sem Orkustofnun gaf út í fyrra var ekki fyrsta leyfið sem Landsvirkjun fær fyrir Hvammsvirkjun. Orkustofnun gaf út slíkt leyfi árið 2022 en var fellt úr gildi af úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, á þeim grundvelli að það bryti í bága við lög um stjórn vatnamála.
Landsvirkjun hlaut síðar undanþágu Umhverfisstofnunar á reglum um breytingar á vatnshlotum og Orkustofnun tók umsókn um virkjunarleyfi til meðferðar á ný. Ellefu landeigendur við Þjórsá höfðuðu þá mál á hendur íslenska ríkinu og Landsvirkjun til þess að koma í veg fyrir leyfisveitingu.
Orkustofnun gaf eins og áður segir út virkjanaleyfi í september í fyrra. Þá bættu landeigendur kröfu um ógildingu þess við kröfugerð sína í málinu.
Fréttin hefur verið uppfærð.