Innlent

Gripinn þrisvar sama kvöldið og skuldar rúma milljón

Árni Sæberg skrifar
Maðurinn ók um Austurveg á Selfossi, bæði drukkinn og undir áhrifum kannabiss. Þar má finna Héraðsdóm Suðurlands, þar sem hann var dæmdur til greiðslu hárrar sektar.
Maðurinn ók um Austurveg á Selfossi, bæði drukkinn og undir áhrifum kannabiss. Þar má finna Héraðsdóm Suðurlands, þar sem hann var dæmdur til greiðslu hárrar sektar. Vísir/Vilhelm

Karlmaður hefur verið dæmdur til greiðslu 1,29 milljóna króna fyrir endurtekin umferðarlagabrota framin sama kvöldið á Selfossi. Hann var stöðvaður tvisvar sitt hvoru megin við veitingastað KFC í bænum.

Í dómi Héraðsdóms Suðurlands, sem kveðinn var upp þann 13. janúar en hefur ekki verið birtur, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir eftirtalin umferðarlagabrot, öll framin aðfaranótt sunnudagsins 17. mars 2024:

  1. með því að hafa ekið bifreið, án þess að hafa öðlast ökurétt, um Austurveg við KFC á Selfossi, undir áhrifum áfengis, vínandamagn í blóði 1,91 ‰, og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Í blóði hafi mælst tetrahýdrókannabínól 5,8 ng/ml.
  2. með því að hafa ekið bifreið, án þess að hafa öðlast ökurétt, um bifreiðastæði aftan við KFC við Austurveg á Selfossi, undir áhrifum áfengis, vínandamagn í blóði 2,26 ‰, og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Í blóði hafi mælst tetrahýdrókannabínól 5,7 ng/ml.
  3. með því að hafa ekið bifreið, án þess að hafa öðlast ökurétt, austur Austurveg á Selfossi og þaðan skamman spöl um Gaulverjabæjarveg í Sveitarfélaginu Árborg, undir áhrifum áfengis, vínandamagn í blóði 2,31 ‰, og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Í blóði hafi mælst tetrahýdrókannabínól 4,0 ng/ml.

Þá segir að maðurinn hafi ekki mætt við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru í Lögbirtingablaði þann 20. nóvember síðastliðinn, ásamt fyrirkalli þar sem þess hafi verið getið að málið kynni að verða dæmt að manninum fjarstöddum.

Málið var því tekið til dóms og útivistardómur kveðinn upp í því í samræmi við ákvæði laga um meðferð sakamála þess efnis.

Sannað teldist að maðurinn hafi gerst sekur um þau brot sem hann var ákærður fyrir og refsing hans væri hæfilega ákveðin 1.290.000 króna sekt til ríkissjóðs, sem honum beri að greiða innan fjögurra vikna frá birtingu dóms, ellegar sæta fangelsi í 44 daga. 

Þá væri hann svitpur ökuréttindum í fimm ár og dæmdur til að greiða allan sakarkostnað, 511 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×