Innlent

Rýmingum væntan­lega af­létt og fært um Fjarðar­heiðina

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Mikill snjór féll á Austfjörðum síðustu daga en nú horfir til betri vegar. 
Mikill snjór féll á Austfjörðum síðustu daga en nú horfir til betri vegar.  Landsbjörg

Veður er orðið með skaplegasta móti á Austfjörðum og nóttin var tíðindalítil að sögn Magna Hreins Jónssonar ofanflóðasérfræðings hjá Veðurstofunni sem fylgdist með í nótt.

Hann segir að rýmingum sem eru í gildi í Neskaupsstað og á Seyðisfirði verði væntanlega aflétt með morgninum. „Það hefur stytt upp og er svona að kalla úrkomulaust fyrir austan núna og skaplegasta veður. Við höfum ekki frétt af neinum nýjum flóðum í nótt, enda svosem ekki við því að búast í myrkrinu,“ segir Magni og bætir við að spáin fyrir daginn sé góð. „Hún er fín. Það er spáð úrkomulausu veðri og til þess að gera hægum vindi.“

Magni segir að miðað við þetta megi búast við því að rýmingum í bæjunum tveimur verði nú aflétt innan tíðar. „Það má alveg búast við því já og ég reikna með því að það verði gert. Ástandið verður metið í birtingu og þá getum við horft til fjalla.“

Og hið víðtæka rafmagnsleysi sem var á Austurlandi í gær er nú næstum fyrir bí. Á heimasíðu RARIK segir að allir viðskiptavinir á svæðinu sem eru með fasta búsetu ættu að vera komnir með rafmagn. Fjöldi staura brotnaði og línur slitnuðu vegna ísingar í veðrinu sem gekk yfir og gætu endanlegar viðgerðir tekið einhverja daga enda aðstæður afar krefjandi.

Þá er færðin á svæðinu einnig orðin skárri og  Fjarðarheiðin var opnuð nú í morgunsárið eða rétt eftir klukkan sjö. Þar er þó snjóþekja á veginum og einbreitt með köflum og eru vegfarandur því beðnir um að aka varlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×