Innlent

Fjórir fluttir með þyrlu eftir á­rekstur

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á sjötta tímanum.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á sjötta tímanum. Vísir/Vilhelm

Fjórir voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir árekstur tveggja bíla á Suðurlandsvegi við Kúðafljót austan við Vík og suðvestur af Kirkjubæjarklaustri.

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, greinir frá þessu í viðtali við fréttastofu. Þyrlan lenti á Borgarspítalanum um 20:12.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á sjötta tímanum vegna árekstursins. Þyrlan tók á loft klukkan 18 og kom á staðinn rétt fyrir 19.

Sex í bílunum tveimur

Í frétt Rúv kemur fram að fimm hafi verið í öðrum bílnum og einn í hinum. 

Garðar Már Garðarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, sagði í viðtali við Rúv að lögregla og sjúkraflutningafólk hafa óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna áverka tveggja. Þeir væru þó ekki taldir lífshættulegir. Hálka og slydda hafi verið á slysstað og bílarnir á tiltölulega lítilli ferð þegar slysið átti sér stað.

Fréttin hefur verið uppfærð með nýjustu upplýsingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×