Algjör pattstaða er uppi í kjaraviðræðum kennara og ríkis og sveitarfélaga. Síðasti formlegi fundurinn í deilunni var á miðvikudaginn í síðustu viku. Eftir þann fund sagði Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari ekki ástæðu til að boða til nýs fundar. Nú fimm dögum seinna er staðan enn óbreytt. Ástráður sagði í samtali við fréttastofu í morgun að verið sé að vinna að lausn deilunnar. Enginn formlegur samningafundur hafi þó verið boðaður og óvíst hvenær það verður.
Ef ekki nást samningar hefjast verkföll kennara í fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum næsta mánudag. Þá hefst líka undirbúningur að verkfallsgerðum kennara í framhaldsskólum.
Inga Rún Ólafsdóttir formaður samninganefndar sveitarfélaga segir stöðuna lítið hafa breyst síðan í síðustu viku og að hún sé sammála Ástráði um að enn sé ekki ástæða til að boða til fundar.
„Ekki enn þá en við bara sjáum til hvernig okkur miðar og hvort að það verður ástæða til að ríkissáttasemjari boði til fundar.“

Ekkert nýtt hafi komið fram í deilunni sem geti liðkað fyrir lausn hennar en það þýði þó ekki að enginn sé að reyna.
„Við erum bara í stöðugri vinnu að reyna að leysa þessa deilu. Við erum búin að vera að vinna um helgina og við munum nota tímann mjög vel fram að verkfalli.