„Get leyft mér að borða mat sem ég áður forðaðist í félagslegum aðstæðum“ Artasan 30. janúar 2025 10:31 „Mjög fljótt dró allt að 80% úr einkennum og nú get ég leyft mér að borða mat sem ég áður forðaðist í félagslegum aðstæðum,“ segir Hekla Guðmundsdóttir, sem hefur tekið inn Digest Gold meltingarensímin með góðum árangri. Hekla Guðmundsdóttir hefur langa reynslu af vandamálum tengdum meltingu sem og lyfjum og bætiefnum sem eiga að aðstoða við þau, en fátt sem ekkert hefur virkað jafn vel og að taka inn Digest Gold meltingarensímin.
Ensím taka þátt í hverju einasta efnafræðilega ferli sem á sér stað í líkamanum, þar á meðal við upptöku næringarefna og því að breyta fæðu í orku. Líkaminn framleiðir meltingarensím sjálfur en margt getur orðið til þess að sú framleiðsla sé ófullnægjandi. Skortur á meltingarensímum veldur oft ónotum í meltingu en það getur einnig haft víðtæk áhrif á líkamlega og andlega heilsu þar sem einkenni eins og meltingarvandamál, húðvandamál, eymsli í liðum og jafnvel andleg vanlíðan geta komið fram. Heilbrigð melting er því ekki aðeins mikilvæg fyrir orku og næringu, heldur hefur hún einnig gríðarleg áhrif á almenna vellíðan. Óþægindi tengd meltingu geta stafað af skorti á ensímum Meltingarensím í formi bætiefna getur verið frábær stuðningur fyrir líkamann, bæði til að koma í veg fyrir skort og til að draga úr óþægindum sem tengjast honum. Þau eru sérstaklega gagnleg fyrir þau sem glíma við fæðuóþol, þar sem þau auðvelda líkamanum að melta og nýta ákveðnar fæðutegundir sem annars gætu valdið vanlíðan. Að taka inn meltingarensím getur stuðlað að bættri meltingu og haft jákvæð áhrif á heildarheilbrigði með því að styðja við starfsemi líkamans á margþættan hátt. Hekla Guðmundsdóttir, stofnandi og eigandi Bandvefslosunar og Body Reroll hefur nýlega byrjað að taka inn Digest Gold meltingarensímin frá Enzymedica og segist strax finna mikinn mun á líðan og nær loksins að njóta þeirra veitinga sem eru í boði. Finnur mikinn mun á líðan með Digest Gold „Máltíðir eru hluti af okkar félagsumhverfi. Við njótum með vinum og einnig í okkar vinnuumhverfi. Lífsgæði okkar geta orðið mikið skert þegar við finnum fyrir vanlíðan eftir máltíðir og það hef ég sjálf upplifað síðastliðin 27 ár. Segja má að ástandið hafi versnað rosalega eftir að gallblaðran var fjarlægð árið 2015 því þá þoldi ég svo illa bæði feitan mat og sterkan og mér leið í raun ekki vel nema ég fengi mér salatblöð og vatn úr krananum. Enginn getur lifað á því eingöngu. Ég hef prufað - með litlum árangri - alls kyns lyf og bætiefni sem eiga að hjálpa til við þau vandamál sem hafa hrjáð mig. Þar má nefna uppþembu, sýrumyndun, ónot í maga og mikinn brjóstsviða. Aukaverkanir lyfjanna gerðu það einnig að verkum að ég hætti á þeim en þær vógu mun þyngra en gagnsemi lyfjanna. Þá er ekki upptalinn kvíðinn við tilhugsunina um jólahlaðborð, kaffihús, vinnufundi á veitingastað og að þurfa að hugsa sérstaklega út í hvernig mér gæti liðið sæmilega í þeim aðstæðum. Fyrir stuttu prófaði ég svo Digest Gold meltingarensímin og átti svo sem ekki von á miklu þar sem ég hef prófað svo margar tegundir af alls konar vörum sem áttu að hjálpa mér. Munurinn var þó þvílíkur! Mjög fljótt dró allt að 80% úr einkennum og nú get ég leyft mér að borða mat sem ég áður forðaðist í félagslegum aðstæðum. Áður hafði ég ýtt matnum til hliðar og fengið mér af honum rétt fyrir heimför. Maður nýtur þess nefnilega ekki að borða þegar einkennin koma öll fram og þau komu yfirleitt svo hratt hjá mér. Nú get ég notið þess að fá mér kaffi, súkkulaði, pizzu, rjóma eða hvað sem er í boði hverju sinni og er Digest Gold í veskinu mínu klárt fyrir næstu máltíð.“ Náttúruleg ensím án aukaefna Digest meltingarensímin frá Enzymedica eru þau öflugustu sem völ er á og eru sérstaklega hönnuð með það markmið að draga úr eða jafnvel koma í veg fyrir einkenni í kjölfar skorts á ensímum. Digest ensímin eru unnin með einkaleyfisvarinni aðferð sem kallast Thera-blend. Þessi aðferð blandar mörgum stofnum ensíma saman sem vinna á mismunandi pH-gildum í líkamanum og ná þannig að melta hvert orkuefni mun betur og hraðar en sambærileg meltingarensím. Digest meltingarensímin eru þar að auki 100% náttúruleg og án allra aukaefna. Digest vörulínan samanstendur af 5 vörum, sem býður upp á mismunandi styrkleika eftir þörfum hvers og eins. Aðeins eitt hylki af Digest ensími fyrir mat getur létt á þegar mikið mæðir á meltingunni. Digest Basic – Gegn vægum meltingarvandamálum Stuðlar að bættri meltingu og nýtingu fæðunnar. Lítil hylki og auðvelt að gleypa. Hentar öllum aldri, líka börnum. Digest Complete – Gegn þrálátum meltingarvandamálum Tvisvar sinnum öflugri ensímblanda en Digest Basic. Fullkomin ensímblanda sem styður við meltinguna. Digest Gold – Þróaðasta varan: Tvær vörur í einni Sérstaklega gott fyrir fólk sem glímir við fjölþætt meltingarvandamál. Að jafnaði 20 sinnum sterkari en aðrar gerðir meltingarensíma. Söluhæsta meltingarvaran í Bandaríkjunum. Inniheldur ATPro sem samanstendur af ATP, magnesíum citrate, Q10 og Phytase. Digest Spectrum – Gegn fæðuóþoli Hentar vel gegn ýmiskonar fæðuóþoli. Styður meltingu á glúteni, laktósa, kaseini, próteini og fenóli. Hentar allri fjölskyldunni. Viðurkennt af Autism Hope Alliance. Lacto – Gegn mjólkuróþoli Hentar vel gegn mjólkuróþoli. Styður meltingu á laktósa og kaseini. Nýjasta varan í Digest fjölskyldunni.
Heilsa Mest lesið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Dagur Sigurðsson á lausu á ný Lífið Tóku hús í gegn út á Seltjarnarnesi og settu upp hjónasvítu í bílskúrnum Lífið Fimm dýrustu eignirnar sem seldust árið 2024 Lífið Mesta mýtan að fólkið sé grimmt og dónalegt Lífið Átján ára aldursmunur milli yngsta og elsta keppanda í Ungfrú Ísland Lífið Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Menning Innlit í fataskáp Dóru Júlíu Lífið „Get leyft mér að borða mat sem ég áður forðaðist í félagslegum aðstæðum“ Lífið samstarf Dagur Sig og Ingunn Sigurpáls nýtt par Lífið Fleiri fréttir Geðveikt fjör á Bessastöðum „Get leyft mér að borða mat sem ég áður forðaðist í félagslegum aðstæðum“ Gerum betur og setjum heilsuna í forgang „Í stuttu máli eru magasýrur okkur lífsnauðsynlegar“ Sannkölluð rokkveisla hjá SIGN í Gamla bíói Aldrei of mikið af G-vítamíni Bóndadagsleikur á Vísi - taktu þátt Allir viðburðir á Íslandi á einum stað á Vísi Góð tilfinning að endurheimta styrkinn Læra og njóta í endurmenntunarferðum KVAN Einstakur bíll sem erfitt gæti verið að toppa Hugræn endurforritun er toppurinn á tindinum Landsliðsmaðurinn Bjarki Már mælir með Nutrilenk Gold Vetrarfjallamennska – öryggisreglur Í strandbænum Sharm El Sheikh í Egyptalandi nýtur þú sólar, hlýju og menningar Láttu draumana rætast með Úrval Útsýn Bæjarfjallið Esjan - gönguleiðir og hjólastígar Náttúruleg leið til að endurbæta meltinguna! Heilsa og vellíðan nátengd góðu umhverfi Partyland í Holtagörðum hefur allt fyrir gamlárspartýið Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 króna Hinn eini sanni konungur mættur í bíó Iceguys með opna búð og árita bókina „Lágspennubókmenntir“ List Sísíar sameinar húmor og hjartahlýju í nýju jólahefti Hátíðlegt en afslappað á tíu ára afmælinu Vinsælustu vörurnar í Signature 2024 Hundrað hugmyndir að gjöf fyrir hann á Já.is Fyrsti alvöru spænski veitingastaðurinn á Íslandi Finndu hina fullkomnu gjöf fyrir hana með vöruleit Já.is Sjá meira