Eggert Aron kom inn af bekknum í tapi gegn Tottenham Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. janúar 2025 19:32 Úr leik kvöldsins. Marc Atkins/Getty Images Eggert Aron Guðmundsson kom inn af bekknum hjá Elfsborg þegar liðið mátti þola 3-0 tap gegn Tottenham Hotspur í Lundúnum þegar liðin mættust í lokaumferð deildarkeppni Evrópudeildar karla í knattspyrnu. Eggert Aron kom inn af bekknum undir lok leiks þegar staðan var orðin 2-0 Tottenham í vil. Dane Scarlett braut ísinn á 70. mínútu en gestirnir vörðust með kjafti og klóm. Þegar Elfsborg reyndi að jafna metin opnaðist vörn liðsins og Oyindamola Ajayi bætti við öðru marki Tottenham. Hinn 17 ára gamli Mikey Moore bætti svo þriðja markinu við í uppbótartíma. Sigurinn þýðir að Tottenham endar í 4. sæti og er komið beint í 16-liða úrslit. Tapið þýðir hins vegar að Elfsborg endar í 26. sæti og kemst ekki í umspil um sæti í 16-liða úrslitum. Evrópudeild UEFA Fótbolti
Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 87-108 | Stjarnan átti í litlum vandræðum með Grindavík Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 87-108 | Stjarnan átti í litlum vandræðum með Grindavík Körfubolti