Lífið

Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þor­gerði

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Katrín og Þorgerður hafa aldrei verið betri.
Katrín og Þorgerður hafa aldrei verið betri.

Katrín Oddsdóttir lögmaður og Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir tónlistar- og útvarpskona eiga von á barni. Þetta tilkynna þær í einlægri færslu á samfélagsmiðlum.

Þar segja þær að hlýjar minningar frá síðasta sumri ylji í janúarstorminum og birta myndir af fjölskyldunni í toppmálum. „Er þá ekki upplagt að opinbera fréttirnar um að það fjölgar í litla költinu okkar í byrjun júní,“ skrifar Þorgerður. Hún segir að spennustigið á heimilinu nálgist rauða viðvörun.

Fyrst fréttist af því opinberlega að þær væru saman síðasta sumar. Þá fagnaði Katrín afmæli Þorgerðar með skemmtilegri ástarkveðju á Facebook sem hún kallaði reyndar vafasama kveðju.

„Það er nátt­úru­lega gjör­sam­lega óviðeig­andi hvað ást­kona mín Þor­gerður Ása Aðal­steins­dótt­ir er hjarta­hlý, klár, skemmti­leg, hæfi­leika­rík, geðgóð, þol­in­móð, traust og heit,“ skrifaði Katrín á Facebook í júní.

Katrín hefur undanfarin ár vakið athygli fyrir störf sín sem lögmaður og meðal annars starfað fyrir Öryrkjubandalagið. Þorgerður Ása er útvarpskona og vísnasöngkona, sem gaf út sína fyrstu plötu árið 2020.


Tengdar fréttir

Katrín og Kristín hvor í sína áttina eftir sextán ára hjónaband

Katrín Oddsdóttir, lögmaður og baráttukona fyrir réttindum fatlaðs fólks og flóttamanna, og Kristín Eysteinsdóttir, leikstjóri og fyrrverandi Borgarleikhússtjóri, eru skildar að skiptum eftir sextán ára hjónaband. Þær hafa um árabil verið eitt glæsilegasta par landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.