Innlent

Fundi slitið og verk­föll hefjast á morgun

Jón Ísak Ragnarsson og Heimir Már Pétursson skrifa
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari. Vísir/Vilhelm

Samningafundi kennara, ríkis og sveitarfélaga lauk um tíuleytið í kvöld án þess að samningar næðust. Verkföll hefjast í fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum í fyrramálið.

Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir að slitnað hafi upp úr viðræðunum eftir langan fund í dag.

„Við höfðum setið lengi og reynt að finna út úr því hvort við gætum náð saman um þær breytingar sem Kennararsambandið vildi gera á innanhústillögu ríkissáttasemjara. Kennararnir kröfðust frekari launabreytinga en gert var ráð fyrir og viðsemjendur féllust ekki á það,“ segir hann.

Í innanhústillögu ríkissáttasemjara fólst að bæði ríki og sveitarfélög féllust á að nauðsynlegt væri að fara í svo kallað virðismat á störfum kennara og gert ráð fyrir að greitt væri inn á það með tilteknum hætti. Síðan hæfist ferli við þetta mat sem ljúka átti á tveimur árum. Sömuleiðis voru uppsagnarákvæði í þeim kjarasamningi sem innanhústillagan fól í sér.

Þegar svo langt hefur verið komið til móts við kröfur kennara og viðræður stranda engu að síður, þrengir það þá möguleika sem eftir eru til að aðilar nái saman?

„Ég er enn þeirrar skoðunar að þetta meginúrlausnarefni, langvarandi deila um jöfnun launa milli markaða, verði ekki leyst með öðru en virðismatsaðferðinni og tel að aðilar hafi orðið sammála um það. Það eru hins vegar skilmálar vegferðarinnar sem verða til þess að það næst ekki saman. Þessir aðilar hafa mjög lengi átt í deilum. Stundum þegar þannig er komið verða samskiptin erfið og ekki gott veganesti inn í samninga,“ segir Ástráður.

Hann reiknar ekki með að kalla deiluaðila saman í bráð en samkvæmt lögum þarf ríkissáttasemjari hins vegar að kalla þá til fundar á tveggja vikna fresti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×