Sport

Dag­skráin: Víkingar í um­spili Sam­bands­deildar og Bónus deildin í körfu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nikolaj Hansen er fyrirliði Víkinga sem eru að skrifa nýjan kafla í sögu íslenska fótboltans með frábærum árangri sínum í Sambandsdeild Evrópu.
Nikolaj Hansen er fyrirliði Víkinga sem eru að skrifa nýjan kafla í sögu íslenska fótboltans með frábærum árangri sínum í Sambandsdeild Evrópu. vísir/Anton

Það er fullt af beinum útsendingum á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á fimmtudögum.

Víkingar spila í kvöld fyrri leikinn sinn í umspili um sæti í sextán liða úrslitum Sambandsdeildarinnar. Þetta er heimaleikur Víkingsliðsins en hann er spilaður í Helsinki i Finnlandi vegna aðstöðuleysis á Íslandi.

Stöð 2 Sport 5 sýnir leikinn beint og það verður upphitun fyrir leikinn og hann síðan gerður upp á eftir.

Auk þess að sýna frá leik Víkinga verða fullt af leikjum í beinni sem fara fram í umspili Evrópudeildar og umspili Sambandsdeildar.

Kvöldið snýst líka um átjándu umferðina í Bónus deild karla í körfubolta en þrír leikir verða sýndir beint í kvöld.

GAZ-leikur kvöldsins verður leikur Hauka og Keflavíkur en þar stýrir Sigurður Ingimundarson liði Keflavíkur í fyrsta sinn í mörg ár. Hans fyrsti leikur verið á móti Friðriki Inga Rúnarssyni en þetta verður ekki fyrsta viðureign þeirra á þjálfaraferlinum.

Höttur tekur á móti Stjörnunni og topplið Tindastóls tekur á móti Þór Þorl. í Síkinu á Króknum.

Það verður hægt að horfa á alla leikina í beinni og leikir kvöldsins verða síðan að lokum gerðir upp í Tilþrifunum.

Það verður einnig sýnt frá fjögurra þjóða móti í íshokkí í nótt þar sem Bandaríkin og Finnland mætast.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Stöð 2 Sport

Klukkan 18.55 er á dagskrá upphitun fyrir GAZ-leik kvöldsins á milli Hauka og Keflavíkur.

Klukkan 19.05 hefst útsending frá leik Tindastóls og Þór Þorl. í Bónus deild karla í körfubolta.

Klukkan 21.10 hefjast Tilþrifin þar sem verður farið yfir leikina fjóra sem voru á dagskrá í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 17.35 hefst útsending frá leik Midtjylland og Real Sociedad í umspili Evrópudeildarinnar í fótbolta.

Klukkan 19.50 hefst útsending frá leik AZ Alkmaar og Benfica í umspili Evrópudeildarinnar í fótbolta.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 19.40 hefst útsending frá leik Twente og Bodö/Glimt í umspili Evrópudeildarinnar í fótbolta.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 19.50 hefst útsending frá leik FC Kaupamannahafnar og Heidenheim í umspili Sambandsdeildarinnar í fótbolta.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 17.20 hefst upphitun fyrir leik Víkings og Panathinaikos í umspili Sambandsdeildarinnar í fótbolta.

Klukkan 17.35 hefst útsending frá leik Víkings og Panathinaikos í umspili Sambandsdeildarinnar í fótbolta.

Klukkan 19.50 hefst uppgjör á leik Víkings og Panathinaikos í umspili Sambandsdeildarinnar í fótbolta.

Vodafone Sport

Klukkan 17.35 hefst útsending frá leik Union SG og Ajax í umspili Evrópudeildarinnar í fótbolta.

Klukkan 19.50 hefst útsending frá leik Porto og Roma í umspili Evrópudeildarinnar í fótbolta.

Klukkan 01.00 hefst útsending frá leik Bandaríkjanna og Finnlands á fjögurra þjóða móti í íshokkí.

Bónus deildar rásin

Klukkan 18.55 er á dagskrá upphitun fyrir GAZ-leik kvöldsins á milli Hauka og Keflavíkur.

Bónus deildar rás 2

Klukkan 19.10 hefst útsending frá leik Hattar og Stjörnunnar í Bónus deild karla í körfubolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×