Erlent

Af­hentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael

Samúel Karl Ólason skrifar
Kfir Bibas var níu mánaða þegar honum og fjölskyldu hans var rænt.
Kfir Bibas var níu mánaða þegar honum og fjölskyldu hans var rænt. AP

Meðlimir Hamas-samtakanna afhentu starfsmönnum Rauða krossins lík fjögurra ísraelskra gísla í morgun. Þar á meðal voru lík Kfir og Ariel Bibas, yngstu gíslanna sem Hamas-liðar tóku í Ísrael þann 7. október 2023.

Kfir var níu mánaða þegar þeim var rænt.

Auk þeirra voru afhent lík móður þeirra, Shiri Bigas og lík Oded Lifschitz. Þegar kisturnar voru afhentar hernum var gerð sprengjuleit í þeim og þær svo fluttar inn í Ísrael, samkvæmt frétt Reuters.

Hamas segir Bigas-mæðginin og Lifschitz hafa dáið í loftárás Ísraela í nóvember 2023 en dauði þeirra var aldrei staðfestur af yfirvöldum í Ísrael. Föður drengjanna, Yarden Bibas, var sleppt úr haldi Hamas fyrr í þessum mánuði.

Fangaskiptin eru liður í vopnahléssamkomulagi Hamas og Ísraela sem felur í sér að þeir skiptast á föngum í nokkrum fösum. Búið er að sleppa nítján Ísraelum, fyrir daginn í dag, og fimm Taílendingum.

Þetta er í fyrsta sinn sem Hamas afhendir lík gísla í skiptunum en talið er að þeir haldi töluverðum fjölda látinna Ísraela. Hamas-liðar eru taldir halda um sextíu gíslum en um helmingur þeirra er talinn látinn.

Einnig stendur til að sleppa sex lifandi gíslum á laugardaginn. Í staðinn munu Ísraelar sleppa fjölda Palestínumanna úr haldi, sem margir hafa verið í haldi án dóms og laga, að mestu konum og börnum.

Fyrsti fasi vopnahlésins átti að snúast um fangaskipti en samhliða því áttu að hefjast viðræður um næsta fasann. Á honum á að binda enda á stríðið í skiptum fyrir alla gísla Hamas. Þær viðræður munu þó ekki vera byrjaðar almennilega.

Fyrsta fasanum á að ljúka í næsta mánuði en það að viðræður um næsta fasa séu ekki byrjaðar hefur meðal annars verið rakið til ummæla Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, og Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, um að Bandaríkjamenn vilji taka yfir Gasaströndina, og vísa íbúum á brott.

Heilbrigðisyfirvöld á Gasa, sem stýrt er af Hamas, segja að um 48 þúsund manns hafi fallið í árásum Ísraela en stórir hlutar Gasastrandarinnar eru í rúst.


Tengdar fréttir

Ísraelar fá sprengjur frá Bandaríkjunum

Ísraelar hafa tekið á móti stórum sprengjum frá Bandaríkjunum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, felldi úr gildi ákvörðun Joe Biden, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, um að fresta skyldi ótímabundið sendingum þess konar sprengja. 

Þremur gíslum sleppt en framtíð vopnahlésins óljós

Vígamenn Hamas-samtakanna hafa sleppt þremur gíslum úr haldi á Gasaströndinni. Mönnunum þremur hefur verið haldið frá 7. október 2023, þegar þeir voru handsamaðir í Ísrael. Framtíð vopnahlésins á Gasaströndinni er þó óljós eftir deilur í vikunni og ummæli Donalds Trump um að reka eigi Palestínumenn af svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×