Íslenski boltinn

Sam­þykktu að taka á­minningu af leik­mönnum og fjölga út­lendingum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eerlendur Eiríksson með gula spjaldið. Nú taka reglur um leikmönn mið af því að leikjum hefur fjölgað mikið í efstu deildum síðustu ár.
Eerlendur Eiríksson með gula spjaldið. Nú taka reglur um leikmönn mið af því að leikjum hefur fjölgað mikið í efstu deildum síðustu ár. Vísir/Diego

Ársþing Knattspyrnusambands Íslands fór fram í dag. Það voru samþykktar nokkrar breytingar á lögum sambandsins.

Tillaga Víkinga á 79. ársþingi um breytingar á áminningum og leikbönnum í efstu deildum karla og kvenna var samþykkt en með breytingum. Eins var tillaga Vestra og ÍA um fjölgun erlendra leikmanna utan Evrópska efnahagssvæðisins einnig samþykkt.

Nýjar siðarreglur KSÍ voru samþykktar og eins verður settur saman starfshópur um að finna bestu leiðina til að gera hlé á miðju keppnistímabili en sú beiðni kom frá Leikmannasamtökunum.

Víkingar vildu að það yrði tekið til greina að leikjum hefur fjölgað mikið í Bestu deildunum eftir að úrslitakeppninni var bætt við. Núgildandi regla um fjölda gulra spjalda sem hefur þau áhrif á leikmaður sæti leikbanni hefur verið óbreytt um árabil þrátt fyrir fjölgun leikja.

Tillaga þessi fól í sér að leikmaður sem hefur fengið þrjú eða færri gul spjöld í fyrstu 22. umferðum Bestu deildar karla eða eftir 18. umferðir Bestu deildar kvenna og fær fjórða gula spjaldið í úrslitakeppni, verður ekki úrskurðaður í leikbann af þeim sökum heldur fær hann leikbann ef hann fær sjöunda gula spjaldið í úrslitakeppni. Sama gildir um umspil í Lengjudeild karla eftir 22. umferðir.

Þetta var samþykkt en með breytingu. Breytingartillagan er þannig að þeir leikmenn sem hafa fengið þrjár áminningar eða færri eftir 22 umferðir í Bestu deild karla og lengjudeild karla að ein áminning verði dregin af þeim. Þetta sama eigi við eftir 18 umferðir í Bestu deild kvenna.

Ekki gátu fleiri en þrír erlendir leikmenn frá öðrum löndum en Evrópska efnahagssvæðinu, Færeyjum og Grænlandi verið skráðir á leikskýrslu en tillaga ÍA og Vestra um að fjölga þessum leikmönnum upp í fimm leikmenn var samþykkt.

Í viðbót bættist við að leikmaður með breskt ríkisfang (England, NorðurÍrland, Skotland og Wales) sem fengið hefur útgefið keppnisleyfi hjá aðildarfélagi KSÍ fyrir 1. janúar 2021 (Brexit), teljist ekki á meðal þeirra fimm erlendu leikmanna frá öðrum löndum en Evrópska efnahagssvæðinu, Færeyjum og Grænlandi.

Hér má sjá yfirlit yfir allar tillögurnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×