Erlent

Sendu skrið­dreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ísraelskir skriðdrekar á leið inn á Vesturbakkann. Ísraelar ætla að halda herliði sínu á Gasa að minnsta kosti út árið.
Ísraelskir skriðdrekar á leið inn á Vesturbakkann. Ísraelar ætla að halda herliði sínu á Gasa að minnsta kosti út árið. AP

Ísrael hefur sent skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í meira en tuttugu ár. Varnarmálaráðherra Ísrael sagði að ísraelskt herlið verði þar að minnsta kosti út árið og að þeir fjörutíu þúsund Palestínumenn sem hafa flúið heimili sín fái ekki að snúa aftur.

Palestínsk yfirvöld hafa lýst aðgerðum Ísraela sem „hættulegri stigmögnun“ á ástandinu.

Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísrael, sagði að kvíarnar verði færðar út á Vesturbakkanum til að koma í veg fyrir hryðjuverkastarfsemi í öllum flóttamannabúðum á svæðinu.

„Við munum ekki leyfa íbúum að snúa aftur og við munum ekki leyfa hryðjuverkastarfsemi að snúa aftur og vaxa,“ sagði Katz einnig í yfirlýsingu.

Ætlar að halda 620 Palestínubúum áfram í haldi

Benjamín Netanjahú forsætisráðherra tilkynnti snemma í morgun að 620 palestínskum föngum verði ekki sleppt úr haldi, eins og lofað var, fyrr en Hamas lætur fleiri ísraelska gísla lausa.

„Í sextán ár höfum við beðið eftir þessu og vonað að syni okkar yrði sleppt eins og hinum föngunum og fjölskyldum þeirra. Við vonum enn að það gerist fljótlega. Þjáningarnar í dag eru framhald þjáninganna sem við höfum þolað þau ár sem hann hefur verið í fangelsi,“ sagði Adeeb al-Saifi, faðir fangans Ahmad al-Saifi sem er í haldi Ísraela.

Palestínsk kona vonaðist eftir því að endurheimta fjóra fjölskyldumeðlimi úr haldi Ísraela.

„Ég bíð eftir fjórum föngum, þremur sonum mínum og manninum mínum. Nafn mannsins míns var á listanum. Ég kom hingað í gær til að bíða eftir lausn þeirra,“ sagði Khitam Abu Qamar um fjölskyldumeðlimi sína.

„Við vorum glöð þrátt fyrir kuldann og alla erfiðleikana á leiðinni hingað. Þeim hefur ekki enn verið sleppt. Það varð afturkippur í samkomulaginu og þeim hefur ekki verið sleppt,“ sagði hún einnig.


Tengdar fréttir

Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza

Háttsettur embættismaður Hamas segir samtökin reiðubúin að láta af stjórn Gaza og  fagnar hann hugmyndum Egypta um óháða nefnd sem myndi fara með stjórn svæðisins.

Ísraelar fá sprengjur frá Bandaríkjunum

Ísraelar hafa tekið á móti stórum sprengjum frá Bandaríkjunum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, felldi úr gildi ákvörðun Joe Biden, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, um að fresta skyldi ótímabundið sendingum þess konar sprengja. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×