Innlent

Bein út­sending: Lær­dómur dreginn af Covid-19

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Upplýsingafundirnir vegna Covid-19 voru um tvö hundruð áður en yfir lauk. Þríeykið Víðir, Þórólfur og Alma voru fastagestir á fundunum.
Upplýsingafundirnir vegna Covid-19 voru um tvö hundruð áður en yfir lauk. Þríeykið Víðir, Þórólfur og Alma voru fastagestir á fundunum. Vísir/Vilhelm

Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands efnir til fundar í röð sinni Heilsan okkar. Fundurinn stendur frá 11:30 til 13:00 og verður streymt beint á Vísi.

Fundurinn ber yfirskriftina „Bjargráð Íslands í heimsfaraldri – Fimm ár frá upphafi COVID-19 á Íslandi“.

„Heimsfaraldur COVID-19 hafði gríðarleg áhrif á heilsu, mannlíf og efnahag á alþjóðavísu. Ísland fór ekki varhluta af þessum áhrifum en í alþjóðlegum samanburði voru sóttvarnarráðstafanir sem gripið var til hérlendis þó hófstilltar og árangursmat á heilsufarsáhrifum á þjóðina eins og best gerist á heimsvísu. Þrátt fyrir þetta eru enn uppi gagnrýnisraddir um viðbrögð íslenskra yfirvalda við faraldrinum og skaðsemi bóluefna við COVID-19,“ segir í tilkynningu vegna fundarins.

Nú þegar fimm ár eru liðin frá upphafi heimsfaraldursins á Íslandi sé mikilvægt að fara yfir þessa atburðarás, rýna gögnin og draga af þeim lærdóm sem nýta megi í viðbrögðum stjórnvalda við komandi heimsfaröldrum.

Fundarstjóri: Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra.

Mælendaskrá:

• Guðrún Aspelund, sóttvarnarlæknir og settur landlæknir: Faraldurinn og sóttvarnarráðstafanir í alþjóðlegum samanburði

• Runólfur Pálsson, prófessor HÍ og forstjóri Landspítala: COVID-19: Viðbrögð og árangur Landspítala

• Unnur A. Valdimarsdóttir, prófessor: Líðan þjóðar á tímum COVID-19

• Magnús Gottfreðsson, smitsjúkdómalæknir og prófessor: Hvað segja rannsóknir um öryggi bóluefna við COVID-19?

• Thor Aspelund, prófessor HÍ: Lýðheilsa; hvernig stendur Ísland í alþjóðlegum samanburði?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×