Innlent

Hugsi yfir ríf­legum launa­hækkunum kennara

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir ljóst að hún muni sækja verulega fram fyrir sitt fólk.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir ljóst að hún muni sækja verulega fram fyrir sitt fólk. Stöð 2/Arnar

Formaður Eflingar kveðst hugsi yfir ríflegum launahækkunum kennara og segir augljóst að verka- og láglaunakonur sé hópurinn sem þurfi að virðismeta.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar er hugsi yfir þeim launahækkunum sem skrifað var undir í gærkvöldi í ljósi þess að verka- og láglaunafólk hafi þurft að sýna ábyrgð þegar skrifað var undir kjarasamninga í fyrra til að halda vöxtum og verðbólgu í skefjum. Kjarasamningurinn hljóðar upp á um 24% launahækkun á fjögurra ára tímabili.

„Við þurfum að skoða nákvæmlega hvað þetta þýðir og hvaða hækkanir er þarna um að ræða en það er ljóst að þarna hefur verið samið um verulega mikið meira en við höfum samið um, Efling, SGS og aðrir innan Alþýðusambandsins bæði á almenna og opinbera markaðnum og eflaust mun þetta hafa töluvert mikil áhrif.“

Samningarnir í gærkvöldi muni breyta nálgun samninganefndar Eflingar þegar kemur að næstu kjarasamningum.

„Þarna til dæmis erum við í Eflingu með stóran hóp kvenna sem starfa inn á leikskólunum. Þær voru fyrir undirritun þessara samninga sem hér um ræðir með verulega lægri laun. Þarna er ég að tala um til dæmis deildarstjórana sem eru í Eflingu en sinna nákvæmlega sömu störfum og leikskólamenntaðir deildarstjórar og nú er launamunurinn væntanlega orðinn mjög mikill. Og auðvitað þýðir þetta það að við munum koma í næstu samningum og sækja fram fyrir okkar fólk, fyrir okkar konur.“

Þá segir hún að á þessum tímapunkti sé nauðsynlegt að Alþýðusambandið, Efling og Starfsgreinasambandið að rýna í það sem felst í virðismatsvegferðinni.

„Það er auðvitað skrítið að sjá að það er verka- og láglaunafólk sem var tilbúið til að axla þessa miklu ábyrgð, semja með þessum hætti en aðrir hafa ekki verið tilbúnir til þess að feta í þau fótspor. Það er undarlegt að horfa upp á það.“


Tengdar fréttir

Ógeðs­lega stoltur af kennurum

Formaður Kennarasambands Íslands segist ógeðslega stoltur af kennurum þessa lands eftir undirritun fjögurra ára kjarasamnings við sveitarfélögin og ríkið. Kennarasambandið sé að verða að því öfluga stéttarfélagi sem það þurfi að vera. Samningurinn marki þó aðeins upphaf. Enn vanti fjögur þúsund kennara á Íslandi en nýr samningur hjálpi vonandi til að fjölga faglærðum í skólum landsins.

Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík segir í samtali við Vísi að sveitarfélögin hafi einróma samþykkt þann samning sem nú stendur til að skrifa undir í Karphúsinu. Það sé mikið fagnaðarefni.

Kjarasamningur kennara í höfn

Kjarasamningur Kennarasambands Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga og ríkið var undirritaður í húsakynnum ríkissáttasemjara á tólfta tímanum í kvöld. Samningurinn er mjög svipaður þeim sem sveitarfélögin höfnuðu á föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×