Innlent

Sóttu mann í ó­göngum á Hólma­tindi

Atli Ísleifsson skrifar
Hólatindur er erfiður uppgöngu. Frá aðferðum í nótt.
Hólatindur er erfiður uppgöngu. Frá aðferðum í nótt. Landsbjörg

Björgunarsveitir á Austurlandi og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út eftir boð bárust frá manni sem hafði lent í ógöngum á Hólmatindi um klukkan 20:30 í gærkvöldi.

Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir í samtali við fréttastofu að seint í gærkvöldi hafi björgunarsveitarmenn við æfingar orðið varir við ljós ofarlega í Hólmatindi, sem er fjall milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar.

„Björgunarsveitarfólk sem var að fara á æfingu varð vart við þetta og var þar á ferðinni einn maður sem að hafði ákveðið að bregða sér í fjallgöngu og var kominn í ógöngur. Úr varð nokkur aðgerð að koma aðstoð til hans,“ segir Jón Þór.

Dróninn búinn til notkunar. Landsbjörg

Hann segir að manninum hafi verið orðið mjög kalt og þá hafi verið notast við dróna til að koma skilaboðum til mannsins sem var í um fimm hundruð metra hæð. 

Það voru kallaðar út björgunarsveitir bæði frá Eskifirði, Reyðarfirði og Neskaupstað og var göngufólk sem lagði á Hólmatind áleiðis til landsins. Komið var að manninum um klukkan hálf tvö í nótt.

„Hólmatindur er ófrýnilegur, brattur og klettóttur og ekki auðvelt að ganga á hann. Björgunarsveitarfólk komst að lokum til hans, en jafnframt hafði þyrla Gæslunnar verið kölluð til. Hún kom eftir að hafa tekið eldsneyti á Höfn í nótt og náði að hífa manninn upp og niður og fór svo aftur í fjallið og sótti gönguhópana sem þar voru og höfðu verið hjá manninum þar til aðstoð þyrlu barst.“

Jón Þór segir að alls hafi tveir hópar björgunarsveitarmanna farið að manninum, alls níu manns. Þeir hafi fylgt manninum að grasbala þar sem þyrlan gat lent.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi segir að um hafi verið að ræða erlendan sjómann sem hafi verið nýkominn með skipi sínu til hafnar og ekki áttað sig á aðstæðum.

Myndir úr dróna í nótt. Sitt hvoru megin við manninn má sjá dökka díla í sömu hæð, sem eru björgunarmenn að nálgast hann.Landsbjörg

Foktjón á Ólafsfirði

Jón Þór segir að annars hafi nóttin gengið nokkuð vel.

„Núna í morgunsárið var svo kallað út á Ólafsfirði vegna foktjóns sem þar var að verða. Annars vegar þak á húsi sem var að losna og hins vegar stór rúða sem hafði sprungið. Björgunarsveitin Tindur fór í það að annars vegar tryggja þakið og loka fyrir rúðuna,“ segir Jón Þór.


Tengdar fréttir

Þak flettist af húsi í Sandgerði

Björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði var kölluð út á öðrum tímanum í nótt vegna þaks sem var að fjúka af húsi í bænum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×