Kane á skotskónum í sigri Bæjara í ein­vígi þýsku liðanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Harry Kane fagnar fyrra marki sínu fyrir Bayern München í kvöld.
Harry Kane fagnar fyrra marki sínu fyrir Bayern München í kvöld. AFP/Peter Kneffel

Bayern München er í fínum málum eftir 3-0 sigur á Bayer Leverkusen í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.

Bæjarar kláruðu leikinn ellefu á móti tíu eftir að Leverkusen maðurinn Nordi Mukiele fékk sitt annað gula spjald á 62. mínútu.

Harry Kane kom Bayern yfir strax á níundu mínútu leiksins þegar hann skallaði inn sendingu Michael Olise. Mikilvægt mark svo snemma leiks.

Þannig var staðan þar til á 54. mínútu þegar Jamal Musiala kom Bayern í 2-0 með marki af stuttu færi.

Bæjarar misstu reyndar markvörðinn sinn Manuel Neuer meiddan af velli á 58. mínútu þannig að þetta var ekki fullkomið kvöld.

Kane gerði það þó enn betra þegar hann kom liðinu 3-0 með marki úr vítaspyrnu á 75. mínútu. Kane fiskaði vítið sjálfur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira