Innlent

Starfs­menn á tveimur stöðum veikst vegna myglu

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir starfsfólk embættisins á tveimur starfsstöðvum hafa veikst vegna myglu.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir starfsfólk embættisins á tveimur starfsstöðvum hafa veikst vegna myglu. Vísir/Vilhelm

Dæmi eru um að starfsfólk Ríkislögreglustjóra hafi veikst vegna myglu á tveimur mismunandi starfsstöðvum. Flytja hefur þurft starfsemi sérsveitarinnar í nýtt húsnæði, en ríkislögreglustjóri segir aðstöðu hennar hafa verið ómögulega um árabil.

Mygla kom upp í Skógarhlíð í Reykjavík á síðasta ári, en þar hafa Almannavarnir verið til húsa. Flytja þurfti starfsemi þeirra vegna þess. Ríkislögreglustjóri er einnig með skrifstofur og aðra starfsemi í höfuðstöðvum sínum að Skúlagötu 21. Þar hefur einnig fundist mygla og starfsemi verið flutt til milli hæða á meðan viðgerðir standa yfir. Ríkislögreglustjóri segir samstarf við Framkvæmdasýsluna - Ríkiseignir og húseiganda hafa verið gott.

„En auðvitað er þetta erfitt fyrir þá sem hreinlega veikjast. Við erum með fólk sem hefur veikst og erum að fara núna í að skima alla starfsmenn, til þess að sjá hvort þessi húsakostur hefur haft áhrif á þeirra heilsu,“ segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri.

Verið sé að róa öllum árum að því að mæta ástandinu, bæði með mælingum og lagfæringum.

Sérsveitin farin annað

Stórar deildir sem sinni mikilvægu hlutverki hafi þurft að flytja, bæði innan húss eða af Skúlagötu, þar sem húsnæðið henti hreinlega ekki lengur.

Höfuðstöðvar Ríkislögreglustjóra eru við Skúlagötu 21. Vísir/Egill

„Við erum bæði að færa innan hússins greiningardeildina þar sem eru mjög miklar öryggiskröfur. Svo höfum við þurft að flytja sérsveitina í annað húsnæði. Ég vil nú kannski ekki endilega tala um hvar það er, en við höfum þurft að flytja hana líka. Hún er búin að vera í algjörlega ómögulegu húsnæði í mörg ár, þar sem við höfum verið að nýta bílakjallara sem starfsaðstöðu, sem er alls ekki hugsaður sem slíkur. Þannig að það er í raun verið að bæta úr aðstæðum þeirra.“

Taka öryggismælingar

Sigríður á ekki von á því að allt húsnæðið verði metið ónothæft.

„Við erum að horfa á bílakjallara og jarðhæð, hluta af því. Svo hafa staðið yfir viðgerðir á fjórðu hæð sem eru búnar. Svo viljum við taka öryggismælingar því það hafa nokkrir veikst hjá okkur, og að sjálfsögðu tökum við því alvarlega,“ segir Sigríður Björk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×