Erlent

Sam­mála JD Vance um inn­flytj­enda­stefnu Evrópu

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Mette Frederiksen segir að Vance hafi margt til síns máls þegar hann segir að óheft flæði farand- og flóttafólks ógni öryggi Evrópu.
Mette Frederiksen segir að Vance hafi margt til síns máls þegar hann segir að óheft flæði farand- og flóttafólks ógni öryggi Evrópu. AP

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og formaður danskra jafnaðarmanna, segist sammála JD Vance, varaforseta Bandaríkjanna, um að of mikill innflutningur flótta- og farandfólks ógni öryggi Evrópu.

Þetta kom fram í viðtali bandaríska miðilsins Politico við Mette í vikunni en DR greinir frá.

„Varaforsetinn, JD Vance, hafði rétt fyrir sér þegar hann varaði við flæði farand- og flóttafólks til Evrópu í febrúar. Ég sé fjöldainnflutning fólks til Evrópu sem ógn gagnvart daglegu lífi í Evrópu,“ sagði Mette.

Hellti sér yfir leiðtoga Evrópu

Vance lét leiðtoga Evrópu heyra það í ræðu sinni á öryggisráðstefnu í München í Þýskalandi í febrúar, en þar sagði hann að óheft flæði fólks til Evrópu væri jafnvel meiri ógn gagnvart öryggi álfunnar en Rússar.

Þá sakaði hann evrópska ráðamenn um að hunsa vilja þjóða sinna, snúa úrslitum kosninga, hunsa trúfrelsi og um að gera ekki nóg til að stöðva flæði flótta- og farandfólks. Hann gagnrýndi þá einnig fyrir viðhorf til þungunarrofs og sakaði Evrópu um að hafa fjarlægst þau hefðbundnu gildi sem heimsálfan hefði deilt með Bandaríkjamönnum.

Ummæli Vance féllu í grýttan jarðveg á ráðstefnunni. Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, gagnrýndi Vance harðlega þegar hann steig á svið. Sagði hann meðal annars að lýðræði þyrfti að geta varið sig gegn öfgum.

Rússar stærsta ógnin

Mette sagðist í viðtalinu ekki geta verið sammála Vance um að Rússar væru ekki stærsta ógn Evrópu, en hann hefði eftir sem áður rétt fyrir sér um innflytjendamálin.

„Þegar ég spyr fólk út í áhyggjur þeirra af öryggismálum, segja þau öll að Rússar og vernd Evrópu séu það allra mikilvægasta eins og sakir standa,“ segir Mette.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×