Árásarmanninum er einnig gert að greiða manninum sem varð fyrir árásinni, karlmanni á fimmtugsaldri 400 þúsund krónur í miskabætur, og 2,5 milljónir í sakarkostnað.
Árásin sem málið varðar átti sér stað á heimili þess sem varð fyrir henni í Kópavogi á sunnudagsmorgni í mars árið 2022. Hann leigði íbúð hjá foreldrum árásarmannsins. Um er að ræða kjallaraíbúð undir einbýlishúsi foreldranna, þar sem árásarmaðurinn bjó líka.
Sonurinn í næsta herbergi
Vísir fjallaði um aðalmeðferð málsins sem fór fram í febrúar. Þar greindi maðurinn sem varð fyrir árásinni frá því að faðir árásarmannsins hefði greint honum frá því að sonur hans hefði átt erfitt. Maðurinn sagðist alltaf hafa reynt að vera viðkunnanlegur við árásarmanninn.
Sjá nánar: Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað
Þennan morgun þóttist maðurinn vita að foreldrar árásarmannsins væru erlendis, og hann væri því einn heima. Sjálfur hafi hann verið heima með barnungum syni sínum.
Árásarmaðurinn hefði látið undarlega, verið með læti, bankað upp á hjá feðgunum og sakað manninn um eitthvað óljóst.
Einhverju síðan hafi árásarmaðurinn hrækt á bíl mannsins, makað hrákunni yfir húddið og svo tekið stórt slökkvitæki og slegið því í bílrúðuna. Þá hafi maðurinn hringt á lögregluna, og hún viljað fá að vita hvað væri fullt nafn árásarmannsins.
Hann ákvað því að skjótast út og finna nafn hans á svokölluðu hurðaskilti við útidyrahurð heimilis árásarmannsins. En á sama tíma hafi árásarmaðurinn farið inn í húsið.
Maðurinn elti hann aftur þangað inn, og þar áttu þeir í átökum, en árásarmaðurinn mun hafa verið vopnaður eldhúshníf. Árásarmaðurinn var ákærður fyrir að stinga manninn tvívegis vinstra megin í brjóstkassa.
Á meðan á átökum mannanna stóð sagðist sá sem varð fyrir árásinni hafa öskrað á son sinn og beðið hann um að halda sig inni í herberginu. Eftir að maðurinn áttaði sig á því að hann hafði verið stunginn sagðist hann hafa tekið árásarmanninn niður og haldið honum þannig þangað til lögregla kom á vettvang.

Iðraðist mikið
Í dómi héraðsdóms að árásin hafi verið alvarleg þar sem hættulegu vopni var beitt. Mikil mildi væri að ekki hefði hlotist meira líkamstjón af. Þá hefði árásin verið framin í viðurvist barnungs sonar þess sem varð fyrir árásinni.
Árásarmaðurinn sagðist iðrast mikið og hafa komið lífi sínu á rétta braut. Vegna þess, en líka vegna þess hve mikill dráttur varð á meðferð málsins þótti rétt að skilorðsbinda refsinguna.