Á íbúafundinum á fimmtudag átti að kynna breytingar í Grafarvogi um frekari uppbyggingarmöguleika. Kynntar voru breytingar á skipulagi þar sem búið var að fækka nýjum íbúðum úr 476 í 340.
Guðlaugur segir fólk ekki flytja ekki í Grafarvog því það þurfi þess, heldur því það vilji það. Guðlaugur fór yfir stöðuna og umræður á hitafundi fyrir helgi í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Á vef Reykjavíkurborgar kemur fram að skipulagsbreytingin sé í kynningu og hægt að setja inn athugasemdir til og með 10. apríl. Búið er að skila inn sjö umsögnum eins og er þar sem íbúar lýsa óánægju með að byggja eigi hærri hús, að verið sé að byggja á bílastæðum og grænum svæðum og að fækka eigi bílastæðum á hvert hús í eitt.

Guðlaugur segir skipulagsbreytingarnar ekki hafa verið kynntar vel. Það hafi verið 700 manna fundur fyrir jól þar sem fólk lýsti ekki áhuga á breytingunum. Guðlaugur segir mikið af grænum svæðum í hverfinu og það sé hugsunin að baki hverfisins. Það sé heilnæmt og bæti lífskjör að hafa aðgang að náttúru.
„Hugmyndin er einfaldlega þessi: Það var bara keyrt um Grafarvoginn og sagt hér er laus blettur, og hér er laus blettur og það er hægt að setja fullt af húsum hér,“ segir Guðlaugur um skipulagsbreytingar borgarinnar og að upphaflega hafi átt að koma fyrir nærri 500 íbúðum á þessa bletti.

Á fundinum á fimmtudag hafi komið í ljós að ekki hafi verið búið að gera hljóðvistarskýrslur eða greiningu á umferð og embættismenn hafi ætlast til þess að íbúar myndu skipta sér niður þau svæði sem þau búi á og breytingar á svæðinu yrðu kynntar fyrir þeim í stað þess að það yrðu almennar umræður.

„Fólk er að verja hverfið sitt. Þegar það flutti í hverfið er það skrifað út að það sé fullmannað hverfi, fullgert, og auðvitað er enginn að setja sig á móti því að breyta hlutum sem eru í samræmi við það sem þarna gerist. En þarna ertu ekki að tala um breytingu, heldur byltingu,“ segir Guðlaugur og þetta sé partur af „trúarbrögðum um ofurþéttingu byggðar“ sem hafi verið í gangi síðustu ár í borginni.
Reykjavíkurborg birti stutta tilkynningu um fundinn á vef sínum á föstudag en minntist ekkert á að mikil óánægja hafi verið meðal íbúa um breytingarnar og fyrirkomulag fundarins. Ítarlega er þó fjallað um það í nokkrum fréttum á hverfismiðlinum Grafarvogur.net að fundurinn hafi verið erfiður og mikill hiti á fundinum. Til dæmis er fjallað þar um að íbúar hafi verið verulega óánægðir með að ekki myndu fara fram almennar umræður um skipulagsbreytingarnar.

Guðlaugur segir fólk búa í hverfinu á ákveðnum forsendum, þeim líði vel, og það hafi enginn stjórnmálamaður komið til þeirra og tilkynnt að það eigi til dæmis að taka grænu svæðin. Það sé ekki verið að taka þau öll en það sé gríðarleg breyting að bæta við rúmum 300 íbúðum á svæði sem núna eru græn.
Guðlaugur segir að hann hafi talið að eftir fundinn sem fór fram fyrir jól myndi Reykjavíkurborg leggja málið til hliðar og að þessar breytingar yrðu „jarðaðar“.
Í þættinum ræddu þau einnig vilja stjórnmálamanna til að hlusta á kjósendur og eiga við þá almennar umræður. Guðlaugur segir sögulegt hvernig borgin gengur fram í þessu máli. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni að ofan.
