Innlent

Ekki náð að góma þjófa í dular­gervi

Bjarki Sigurðsson skrifar
Guðmundur Pétur Guðmundsson er lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Guðmundur Pétur Guðmundsson er lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Einar

Þjófar, dulbúnir sem ferðamenn, hafa herjað á túrista bæði á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi síðustu daga. Lögreglufulltrúi segir þjófana vel skipulagða og enginn þeirra hefur verið staðinn að verki. 

Í dag varaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu við þjófum sem hafa herjað á ferðamenn í miðbæ Reykjavíkur. Talið er að sami hópur hafi fyrir skömmu einnig stolið af ferðamönnum við Þingvelli.

Meðal aðferða hópsins er að finna ferðamenn sem eru með bakpoka, barnavagn eða annað slíkt, og bjóðast til þess að taka mynd af þeim, til dæmis með Hallgrímskirkju í bakgrunninum. Þegar þeir leggja bakpokann frá sér að skilja barnavagninn eftir til að stilla sér upp fyrir myndina fer einhver annar í hópnum og tekur það sem er verðmætt úr pokanum. Síðan eru þeir á bak og burt.

Djarfir og í dulargervi

Þjófarnir eru taldir af erlendu bergi brotnir og dulbúa sig sem túristar. Þeirra falla því vel inn í hópinn á þessum vinsælu ferðamannastöðum.

Guðmundur Pétur Guðmundsson, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir þjófana oftast vilja komast í peninga og greiðslukort. Þá nota þeir einnig djarfari aðferðir en lýst var áðan.

„Tveir, jafnvel fleiri, allt upp í fimm, blanda sér í hóp ferðamanna. Elta kannski fólk sem er með bakpoka og ferðatöskur og ætlar á sinn íverustað. Stundum þarf lyklabox og kóða til að komast inn. Þeir bíða þar og þykjast eiga að fara þangað inn líka. Í þessu öllu saman er búið að fara í bakpoka eða vasa og stela,“ segir Guðmundur Pétur.

Leita allra upplýsinga

Lögreglan taki við öllum upplýsingum um hópinn.

„Við erum sum sé að vara við þessu og um leið að reyna að fá vitneskju um hvar þetta fólk heldur sig svo við getum talað við það,“ segir Guðmundur Pétur. 

Hafið þið yfirheyrt eða handtekið einhverja sem þið teljið tengjast þessum hópi?

„Nei, ekki enn þá. Þess vegna kom tilkynningin. Okkur vantar að finna fólkið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×