Aldís Ásta, sem var markahæst á vellinum í síðasta leik, lét sér nægja að skora fjögur mörk að þessu sinni en lagði jafnframt upp fimm mörk. Markahæst í kvöld var samherji hennar Melanie Felber sem skoraði níu mörk.
Íslendingarnir í liði Kristianstad, þær Berta Rut Harðardóttir og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoruðu samanlagt fjögur mörk, Jóhann þrjú og Berta Rut eitt.
Leikið var á heimavelli Kristianstad í kvöld en gestirnir frá Skara höfðu mikla yfirburði allan leikinn og skoruðu sjö fyrstu mörk hans án svars frá heimakonum. Skara leiddi með níu mörkum í hálfleik og sigurinn í raun aldrei í hættu eftir þessa orrahríð í byrjun.
Staðan í einvíginu er því orðin 2-0 Skara í vil og geta deildarmeistararnir því tryggt sér sæti í 4-liða úrslitum í næsta leik sem fram fer á sunnudaginn.