Í kæru ÍR segir að félagið fari fram á að ákvörðun byggingarfulltrúa um að félagið skuli slökkva á LED-skilti á horni Breiðholtsbrautar og Seljaskóga verði felld úr gildi. Skiltið hafi staðið þarna árum saman, hafi fyrst verið flettiskilti en síðar uppfært í nútímatækni, það er gert stafrænt og félagið telji að það sé heimild fyrir því í samþykktum Reykjavíkurborgar um skilti frá maí 2020.
Borgin hefði nefnt heimildarskort fyrr væri hann til staðar
„Ef væri ekki heimild fyrir skiltinu væri borgin búin að nefna það í fyrri samskiptum. Í framhaldi af samkomulagi ÍR og borgarinnar frá maí 2016 ætlar borgin að finna skiltinu nýjan stað þar sem trjágróður á núverandi stað er að skerða sýnleika skiltisins og þar með virðið, en auglýsingatekjur af skiltinu er mikilvæg tekjulind fyrir barna- og unglingastarf félagsins.“

Síðla árs 2023 hafi félagið fylgt þessu samkomulagi eftir og óskað eftir að skoðaðar yrðu leiðir til að auka sýnileika skiltisins og í bréfi dagsettu 18. janúar 2024 frá skipulagsfulltrúa komi fram að þegar sé heimild fyrir þessu skilti í deiliskipulagi og hvergi nefnt að neitt leyfi vantaði fyrir skiltinu á núverandi stað.
Skipti mjög miklu máli
Niðurstaðan hafi verið að ekki væru gerðar skipulagslegar athugasemdir við að ÍR léti vinna að breytingu á deiliskipulagi til að heimila færslu á því innan lóðar. Hvergi hafi komið fram athugasemdir við skiltið og núverandi staðsetningu. Í ljósi ofangreindra upplýsinga óski ÍR eftir að byggingarfulltrúi endurskoði þá ákvörðun sína að slökkva þurfi á skiltinu.
Loks segir í kafla kærunnar um hagsmuni kæranda að ákvörðun byggingarfulltrúa hafi mjög mikil áhrif á hagsmuni félagsins. Ef slökkt yrði á skiltinu töpuðust leikutekjur, sem skipti félagið miklu máli fyrir barna- og unglingastarf félagsins.