Verk á íslensku vinsæl í Grikklandi Bjarki Sigurðsson skrifar 4. apríl 2025 10:00 Hlín í hlutverki sínu í Töfraflautunni. Hlín Leifsdóttir, sópransöngkona og ljóðskáld, hefur slegið í gegn í Grikklandi upp á síðkastið, meðal annars með ljóðalestri og tónlistarútgáfu á Íslandi.
Nýlega tók Hlín þátt í uppsetningu á Töfraflautunni eftir Mozart í leikstjórn gríska óperuleikstjórans Dimitri Stavrianos. Þar fer hún á víxl með hlutverk Fyrstu dömu og sjálfrar Næturdrottningarinnar. „Næturdrottningin er oft túlkuð sem táknmynd hins illa, en það má alveg eins skilja hana sem misskilda kvenfrelsishetju. Þessi dularfulla margræði er kannski kjarni töfra þessa hlutverks,“ segir Hlín. Gefur út tónlist á íslensku Hlín fæst bæði við tónlist og skáldskap og vinnur hún mikið með tónaljóðform. Þar blandar hún saman blæbrigðaríkum leiklestri við fjölbreytilegan söng. Hún hefur unnið mikið með gríska raftónlistarmanninum Vasilis Chountas og hafa gefið út tvær plötur, sú fyrri á íslensku. Andrými by Hlín Leifsdóttir & Morton Á plötunni má meðal annars finna lagið Raddbandaharpa en gríski leikstjórinn Alkistis Kafetzi hefur meðal annars framleitt kvikmynd út frá laginu. Listamenn virðast njóta sín að semja verk út frá verkum Hlínar, því gjörningalistamaðurinn Maria Salouvardou hefur einnig leikið sér að því að vera með gjörninga út frá verkum hennar. „Maria Salouvardou er einn af mínum uppáhalds samtímalistamönnum og ég varð því mjög upp með mér þegar hún fór að vísa í ljóðin mín á sínum myndlistarsýningum. Ég finn mjög sterka tengingu við hennar verk sem listamanneskja og ég hlakka til eins og lítið barn til jólanna að sjá þennan gjörning. Eitt af því sem gleður mig í lífinu er gefandi samstarf við aðra listamenn,“ segir Hlín. Ævintýri að búa í Grikklandi Hlín segir mjög gefandi fyrir listamann að starfa í Aþenu. „Mér fannst mjög hressandi og gefandi að uppgötva að hér í borg eru menn ófeimnir við að tala um að listin eigi að breyta heiminum. Fyrst í stað fannst mér ég hafa tekið tímavél til ársins 1968 þegar menn trúðu á kraft listarinnar með meira afgerandi hætti en síðar varð. Það var mikið ævintýri að upplifa þetta ferðalag aftur í tímann. En ferðalagið hélt áfram lengra aftur í aldir og ég áttaði sig fljótt á því að þessi mikli kraftur í listalífinu væri ekki síður til kominn út af sterkri tengingu fólks við eigin fortíð sem Grikkir,“ segir Hlín. Hlín hefur fengist við ýmislegt á sínum tíma í Grikklandi. „Í Grikklandi hinu forna trúðu menn því að listin hefði lækningargildi fyrir sálina. Leikhús voru því ókeypis fyrir allan þorra manna, aðeins þeir allra efnuðustu borguðu, og þeim fannst heiður af því að styðja leiklist. Leikhús og ýmis konar heilsuþjónusta voru oft samofin og læknarnir í frægu heilsumiðstöðinni Epidaurus áttu það jafnvel til að skrifa upp á ákveðnar leikhúsbókmenntir fyrir sjúklinga sína, samhliða öðrum ráðum,” segir Hlín.
Tónlist Íslendingar erlendis Grikkland Ljóðlist Menning Mest lesið Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Lífið Greindist með skyrbjúg eftir notkun megrunarlyfs Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja lúxusíbúð innan við ári eftir kaupin Lífið Þakkar aðal sykurpabbanum fyrir allt Lífið Gellurnar fjölmenntu á gugguvaktina Lífið „Prinsessur eru líka sterkar og fyndnar“ Lífið Madonna og Elton John grafa stríðsöxina Lífið Slæm hárgreiðsla Steinda varð enn verri Lífið Fólk geti gengið frá kaupsamningum sjálft Lífið Seldu draumahúsið og skella sér í Asíuævintýri með krakkana Lífið Fleiri fréttir Fólk geti gengið frá kaupsamningum sjálft Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Þakkar aðal sykurpabbanum fyrir allt Gellurnar fjölmenntu á gugguvaktina Greindist með skyrbjúg eftir notkun megrunarlyfs Slæm hárgreiðsla Steinda varð enn verri Herra Hnetusmjör og Sara selja lúxusíbúð innan við ári eftir kaupin „Prinsessur eru líka sterkar og fyndnar“ Madonna og Elton John grafa stríðsöxina 80 syngjandi karlar syngja hér heima og í Gimli í Kanada „Fólkið hefur gleymst og þetta er ekki manneskjulegt“ Kveðju kastað á Megas í tilefni dagsins Bleik og ævintýraleg miðbæjarperla Með skottið fullt af próteini Trommari Blondie er fallinn frá Stjörnulífið: Skvísuafmæli, Hönnunarmars og hækkandi sól Tónhylur sameinar reynslubolta og þá efnilegustu Geðbrigði er sigurvegari Músiktilrauna Fjölskylda Bryndísar Klöru þakklát Seldu draumahúsið og skella sér í Asíuævintýri með krakkana Laufey sendir lekamönnum tóninn Mikilvægt að á Íslandi sé framleitt úr íslenskri ull „Þessi krakki mun aldrei hlaupa á eftir bolta“ Sjóræningjar réðust á Íslendinga Krakkatían: Blæja, birnir og sveppahús „Ef þú ræðst svona aftur á mig þá stíg ég á fótinn þinn“ Átta ára sæmd heiðursmerki fyrir að bjarga lífi móður sinnar Tæknidagur fjölskyldunnar er í Neskaupstað í dag Hanna Katrín heiðraði Eyjólf í Epal Fréttatía vikunnar: Ungfrú Ísland, eldgos og Þjóðhátíðarlagið Sjá meira