Vísir greindi frá því seint í gærkvöldi að kona á þrítugsaldri hafi á föstudag verið úrskurðuð í gæsluvarðhald í tengslum við andlát karlmanns sem tengdist henni fjölskylduböndum. Haft var eftir heimildum fréttastofu að hinn látni sé um áttrætt og faðir konunnar.
Málið kom upp snemma á föstudagsmorgun og var konan leidd fyrir dómara síðar sama dag þar sem hún var úrskurðuð í gæsluvarðhald fyrir Héraðsdómi Reykjaness í tengslum við rannsókn málsins.
Lögregla vildi í samtali við fréttastofu í gær ekkert staðfesta og varðist allra frétta af málinu.
Í morgun barst svo tilkynning frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þar sem fram kemur að kona um þrítugt hafi verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til miðvikudagsins 16. apríl á grundvelli rannsóknarhagsmuna í tengslum við andlát karlmanns í umdæminu. Tilkynnt hafi verið um meðvitundarlausan karlmann í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu snemma á föstudagsmorgun.
Maðurinn var þungt haldinn þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang en hann lést á slysadeild síðar sama dag. Konan sem er í varðhaldi var handtekin í sama húsi sem er í Garðabæ.
Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við fréttastofu að lögregla muni ekki veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.