Fjölmargir hafa verið handteknir á landamærunum á Keflavíkurflugvelli undanfarnar vikur vegna fíkniefnainnflutnings. Má þar nefna innflutning á 20 þúsund töflum af gerviópíóðum sem vöktu athygli á dögunum en tvær stúlkur, sautján og átján ára voru handteknar í tengslum við það mál og sitja þær í gæsluvarðhaldi.
Alls eru tuttugu og fimm í gæsluvarðhaldi að beiðni lögreglunnar á Suðurnesjum, þar af fimmtán grunaðir um fíkniefnainnflutning í gegn um Keflavíkurflugvöll. Þeir eiga ríkisfang í Palestínu, Sýrlandi, Spáni, Gíneu, Litháen, Nígeríu, Brasilíu, Spáni, Grikklandi, Alsír, Póllandi, Þýskalandi, Slóvakíu, Frakklandi og Lettlandi.
„Ég held að það séu ekki margir dagar þar sem að gæsluvarðahaldsfangar hafa verið svona margir á okkar vegum,“ segir Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum.
Aðallega sé um að ræða innflutning á kókaíni og kannabis.

„Um daginn tókum við t.d. dreng á nítjánda aldursári sem var með um þrettán kíló af kókaíni í lítilli ferðatösku. Það er dálítið sérstakt að vera með full flugfreyjutösku af kókaíni,“ segir hann.
Kom frá Frakklandi
Drengurinn var handtekinn á fimmtudag við komu frá Frakklandi.
„Það blasir við að þarna er ungur maður notaður sem burðardýr og hann átt að fá eitthvað fyrir ferðina. Er væntanlega notaður af öðrum sem ætluð að gera mikið verðmæti úr þessu magni kókaíns.
Samkvæmt verðskrá SÁÁ frá árinu 2023 kostaði gramm af kókaíni í kringum 17 þúsund krónur. Ef verðið er sambærilegt í dag gæti götuverðmæti 13 kílóa af kókaíni numið um 221 milljón króna.