Lífið

Ingvar E. valinn besti leikarinn í Belgíu

Lovísa Arnardóttir skrifar
Kjartan Sveinsson, Heather Millard, Ingvar Sigurðsson, Edda Arnljótsdóttir, Rúnar Rúnarsson og Claudia Hausfeld á frumsýningu myndarinnar í Feneyjum.
Kjartan Sveinsson, Heather Millard, Ingvar Sigurðsson, Edda Arnljótsdóttir, Rúnar Rúnarsson og Claudia Hausfeld á frumsýningu myndarinnar í Feneyjum. Aðsend

Leikarinn Ingvar E. Sigurðsson hlaut í gær verðlaun sem besti leikarinn fyrir hlutverk sitt í myndinni O (Hringur) á lokaathöfn alþjóðlegu BSFF kvikmyndahátíðarinnar í Brussel í Belgíu. Myndinni er leikstýrt af Rúnari Rúnarssyni og hún framleidd af Heather Millard.

Í tilkynningu segir að O (Hringur) sé ljóðræn frásögn af manni sem vill standa sig en hans helsta hindrun sé hann sjálfur. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í haust og hefur verið á ferðalagi um heiminn síðan. Verðlaunin eru níundu verðlaun myndarinnar en hún er einnig komin í forval Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2025.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.