Hafdís Huld í breyttri útgáfu Bretinn Simon Latham hefur endurhljóðblandað lag Hafdísar Huldar, Tomoko, og verður það gefið út á Tónlist.is næstkomandi mánudag. Lagið verður gefið út erlendis í byrjun næsta árs. Tónlist 19. nóvember 2008 06:00
Battle of the Bands að hefjast Undankeppni alþjóðlegu hljómsveitakeppninnar Global Battle of the Bands fer fram í Hafnarfirði 18. til 22. nóvember. Sigursveitin tryggir sér þátttökurétt í úrslitakeppninni sem verður haldin á tónleikastaðnum Scala í hjarta Lundúna, Englandi 14. og 15. desember. Tónlist 17. nóvember 2008 03:00
Zeppelin-dúett breytir um nafn Led Zeppelin-goðsagnirnar Jimmy Page og John Paul Jones hafa ákveðið að halda í tónleikaferð um heiminn ásamt syni trommarans Johns Bonham, Jason. Robert Plant verður hins vegar víðs fjarri og því stendur ekki til að notast við nafnið Led Zeppelin. „Án Plants kemur ekki til greina að notast við nafnið. Zeppelin er ekki til án hans,“ segir talsmaður hinnar nýskipuðu sveitar. Leit stendur nú yfir að eftirmanni hans. Tónlist 17. nóvember 2008 03:00
Steed Lord í kvikmyndahúsi Stalíns Hljómsveit Svölu Björgvins og Einars Egilssonar, Steed Lord, kom fram á skemmtistaðnum Gradus í Moskvu í gærkvöldi. Staðurinn var áður einkakvikmyndahús Jósefs Stalín, einræðisherra Sovétríkjanna, en er nú einn vinsælasti skemmtistaður höfuðborgarinnar meðal hinna nýríku ólígarka. Ásamt Steed Lord steig Hrafn Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi í Mínus, á stokk með sveitinni og tók með henni tvö eða þrjú lög. Tónlist 16. nóvember 2008 04:00
Þjóðverjar veita hjálparhönd Þýska fyrirtækið A Number of Small Things, sem selur plötur á heimasíðunni anost.net, ætlar að koma Íslendingum til bjargar með því að selja í tonnatali plötur frá íslenska útgáfufyrirtækinu Kimi Records. Tónlist 14. nóvember 2008 09:00
Sprengjuhöllin fagnaði í Óperunni Sprengjuhöllin hélt útgáfutónleika í Íslensku óperunni á þriðjudagskvöld til að fagna útkomu sinnar annarrar plötu, Bestu kveðjur. Hljómsveitin spilaði lög af nýju plötunni í bland við eldra efni við mjög góðar undirtektir. Kynnir kvöldsins var Árni Vilhjálmsson, söngvari í FM Belfast, og sá hljómsveitin Motion Boys um upphitun. Tónlist 14. nóvember 2008 07:00
Jóhann fær góða dóma Tónskáldið Jóhann Jóhannsson fær 6,7 í einkunn af tíu mögulegum á bandarísku tónlistarsíðunni Pitchforkmedia.com fyrir sína nýjustu plötu, Fordlândia. Tónlist 14. nóvember 2008 06:00
Marco V á árshátíð Hollenski plötusnúðurinn Marco V spilar á árshátíð Techno.is sem verður haldin á Nasa á laugardaginn. Einnig koma fram þetta kvöld vinsælir íslenskir plötusnúðar. Tónlist 13. nóvember 2008 06:00
Árituðu ólöglegar plötur Hljómsveitin Mezzoforte er nýkomin heim frá Minsk í Hvíta-Rússlandi þar sem hún spilaði í fyrsta sinn á ferli sínum. Tónleikahöllin í borginni tekur tvö þúsund manns í sæti og var fullt út úr dyrum. Tónlist 13. nóvember 2008 03:15
Íslenskar á by:Larm Hljómsveitirnar Hjaltalín og Retro Stefson spila á norsku tónlistarhátíðinni by:Larm sem verður haldin í Ósló í ellefta sinn í febrúar á næsta ári. Tónlist 12. nóvember 2008 06:00
Samstarf við Nova Scotia Fulltrúar frá Nova Scotia-fylki í Kanada sýndu mikinn áhuga á samstarfi við Ísland á tónlistarráðstefnunni Nova Scotia Music Week sem var haldin í Glasgow í Skotlandi á dögunum. Tónlist 12. nóvember 2008 06:00
Ágætt að vera Íslendingur „Þeim finnst voða spennandi að ég sé Íslendingur. Eins vont og það er að vera Íslendingur dag þá getur það verið ágætt líka,“ segir Akureyringurinn Rúnar F. Rúnarsson, eða Rúnar eff, sem tekur þátt í danska raunveruleikaþættinum All Stars. Tónlist 11. nóvember 2008 06:00
Kynna sína nýjustu plötu Sprengjuhöllin heldur útgáfutónleika í Íslensku óperunni í kvöld til að fagna annarri plötu sinni, Bestu kveðjur. Hljómsveitin mun leika lög af nýju plötunni í bland við eldra efni. Fjöldi aukahljóðfæraleikarar mun einnig stíga á stokk. Tónlist 11. nóvember 2008 06:00
Erlendir nafnar Lay Low Lay Low er án efa einn vinsælasti tónlistarmaður Íslands í dag, auk þess sem erlendir útgefendur slást um krafta hennar. Hún er þó ekki sú eina sem ber þetta sérstæða listamannsnafn því hún á sér að minnsta kosti fjóra nafna úr tónlistarbransaum vestanhafs. Tónlist 10. nóvember 2008 06:00
Aðdáendur upp á svið Rivers Cuomo, forsprakki hljómsveitarinnar Weezer, ætlar að bjóða aðdáendum sínum upp á svið með sér á tónleikum í Kaliforníu 25. nóvember. Cuomo er að kynna sína nýjustu sólóplötu, Alone II, og vill með þessu vekja enn meiri athygli á gripnum. Tónlist 10. nóvember 2008 02:00
Leika á Rosenberg Hljómsveitin Thin Jim and the Castaways heldur tónleika á Café Rosenberg við Klapparstíg á miðvikudagskvöld kl. 21. Tónlist 9. nóvember 2008 03:00
Radiohead er ekki betri Noel Gallagher, liðsmaður Oasis, er ósáttur þegar gagnrýnendur telja Radiohead vera betri hljómsveit en Oasis eingöngu vegna þess að hún sé tilraunakenndari. Tónlist 8. nóvember 2008 06:30
Kreppupönk í áttunda bekk Fjórar þrettán ára stelpur kynntust pönktónlist hjá tónmenntakennaranum sínum. Á fjórum vikum tókst þeim að spila lag og fá það leikið á Rás 2. Tónlist 8. nóvember 2008 06:00
Poetrix predikar úti á landi „Ég er bara að rúnta um landið, rappa fyrir krakkana og borða núðlur. Fokk kreppa!“ segir rapparinn Poetrix – Sævar Daniel Kolandavelu – sem er búinn að vera eina viku á vegum úti og á tvær vikur eftir enn. Hann og dj-inn og bítboxarinn Siggi Bahamas, eða NENNIsiggi, gera nú víðreist og troða upp á 32 stöðum á landsbyggðinni. Þar skemmta þeir og reyna að hafa jákvæð áhrif á krakkana. Tónlist 8. nóvember 2008 06:00
Framlag May í ruslið Axl Rose, forsprakki Guns "N" Roses, hefur hætt við að nota framlag Brians May, gítarleikara Queen, til plötunnar Chinese Democracy. May var aðalgítarleikari í laginu Catcher N" The Rye en á endanum var framlagi hans hent í ruslið. „Þetta er synd því ég lagði mikla vinnu í þetta og var stoltur af minni þátttöku," sagði May. „En ég get alveg skilið ef Axl vill gefa út plötu sem endurspeglar verk þeirra sem eru í hljómsveitinni hans í dag." Tónlist 8. nóvember 2008 05:30
Grohl með Prodigy Dave Grohl, forsprakki Foo Fighters, spilar á trommur í laginu Run With Wolves á nýrri plötu Prodigy, Invaders Must Die. Grohl gerði garðinn frægan sem trommari Nirvana og eftir að sú sveit hætti hefur hann verið duglegur við að taka í kjuðana með öðrum sveitum. Má þar nefna Queens of the Stone Age og Probot. Tónlist 8. nóvember 2008 04:30
Segjast vera finnskir Rokkhljómsveitin Noise ætlar að stinga hausnum í kjaft breska ljónsins og spila þar á fimm tónleikum. Túrinn hefst í kvöld í Donchester. „Við erum nú bara að pæla í að kynna okkur sem band frá Finnlandi,“ segir Stefán Vilberg, bassaleikari Noise. „Þetta eru víst svaðalegar skítabúllur, til dæmis sú í Grimsby. Maður tekur engar óþarfa áhættur.“ Tónlist 8. nóvember 2008 03:45
Litlir kassar orðnir tómir kassar Kreppan hefur ýmsar aukaverkanir. Ein þeirra er að hljómsveitin Þokkabót hefur búið til nýjan texta við vinsælasta lag sitt, „Litlir kassar“. Núna heitir það „Tómir kassar“ og er á leið í spilun. Tónlist 7. nóvember 2008 08:00
Neikvæð orka hressir Fjórða plata Singapore Sling er komin út og heitir Perversity, Desperation and Death, Öfuguggaháttur, örvænting og dauði. „Þetta eru þau þrjú atriði sem hressa mig alltaf við, sama hvað á bjátar," segir Henrik Björnsson, söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar. Tónlist 7. nóvember 2008 06:00
Foo Fighters besta sveitin Foo Fighters var kjörin hljómsveit ársins á verðlaunahátíð tímaritsins Classic Rock sem var haldin í London. Á sama tíma fagnaði tímaritið tíu ára afmæli sínu. Tónlist 6. nóvember 2008 07:00
Johnny á laugardag Útgáfutónleikar hljómsveitarinnar Johnny and the Rest sem áttu að vera á föstudag hafa verið færðir yfir á laugardagskvöld vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Tónlist 6. nóvember 2008 07:00
Hæfileikar, fegurð og fágun Plata hljómsveitarinnar Hjaltalín, Sleepdrunk Seasons, fær sjö af tíu mögulegum á bresku tónlistarsíðunni Drowned in Sound. „Hjaltalín býr til góð popplög í tilraunakenndum útsetningum á að því er virðist áreynslulausan hátt og sýnir að hún er virkilega hæfileikarík og hljómar ekkert eins og landar sínir í Sigur Rós,“ segir í umsögninni. Tónlist 6. nóvember 2008 06:30
Samdi lag fyrir Obama Tónlistarmaðurinn Will.i.am hefur gefið út nýtt lag og myndband til að fagna kjöri Baracks Obama sem forseta Bandaríkjanna. Lagið nefnist It"s A New Day og eyddi Will kosninganóttinni í að ljúka við lagið. Tónlist 6. nóvember 2008 06:00
Fagnar tíu ára afmæli Hljómsveitin Guitar Islancio fagnar tíu ára afmæli sínu með tónleikum í Salnum í Kópavogi á föstudag. Á þessum tíu árum hefur sveitin gefið út fimm plötur og leikið á tónleikum víða um heim, þar á meðal í Bandaríkjunum, Bretlandi, Kína, Japan og Þýskalandi. Tónlist 6. nóvember 2008 06:00