Kristjana til ÍSÍ Kristjana Arnarsdóttir, fjölmiðlakona og fyrrverandi aðstoðarmaður ráðherra, hefur tekið til starfa sem nýr verkefnastjóri kynningarmála á skrifstofu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), í stað Sigríðar Unnar Jónsdóttur sem lét af störfum um síðustu áramót. 4.4.2025 12:30
Trump-tollarnir muni ekki kollsteypa útflutningsgreinum Íslands Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir að hinir nýju tollar sem Bandaríkjaforseti tilkynnti um á miðvikudag og lagðir verða á vörur frá Íslandi, muni ekki kollsteypa íslenskum útflutningsgreinum. Nýju tollarnir séu ekki góðar fréttir en að staðan gæti vissulega verið verri. 4.4.2025 08:02
Hvassir vindstrengir á Snæfellsnesi en milt loft yfir landinu Víðáttumikil hæð er nú suðaustur af landinu og teygir sig yfir landið, en á vestur við Grænland er lægðardrag, sem saman valda suðaustankalda eða -strekkingi og smávætu suðvestanlands fram eftir degi. 4.4.2025 07:15
Vaka jók við meirihlutann í stúdentaráði Vaka - félag lýðræðissinaðra stúdenta jók við meirihluta sinn í stúdentaráðskosningum við Háskóla Íslands og hlaut tíu sæti í ráðinu en Röskva, samtök félagshyggjufólk við Háskóla Íslands sjö sæti. 4.4.2025 07:03
Sveinn ráðinn verkefnastjóri erlends samstarfs Sveinn Helgason hefur verið ráðinn verkefnastjóri erlends samstarfs hjá Samorku, með starfsstöð í Brussel og einnig í Reykjavík. 3.4.2025 13:49
Arnarlaxi bannað að fullyrða um sjálfbæran lax Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu um að banna fiskeldisfélaginu Arnarlaxi að nota fullyrðingu um að laxeldi félagsins væri sjálfbært í markaðsefni sínu og notkun orð- og myndmerkinga sem vísa til þess að lax frá Arnarlaxi sé sjálfbær. 3.4.2025 13:24
Meint hræðsla dómara ekki næg ástæða til að taka málið fyrir Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Mohamads Thors Jóhannessonar, áður Kourani, um áfrýjun. Því stendur átta ára fangelsisdómur yfir manninum, en hann var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps með því að stinga mann í OK Market í mars á síðasta ári og fjölda annarra brota. 3.4.2025 12:29
Tekur yfir rekstur Dollar og Thrifty Bílaleigan Hertz hefur tekið yfir rekstur bílaleigumerkjanna Dollar Rent A Car og Thrifty Car Rental á Íslandi. 3.4.2025 11:41
36 manns sagt upp í tveimur hópuppsögnum Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í mars. 3.4.2025 11:12
Sló mann með glerglasi í höfuðið á Strandgötunni Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í sex mánaða fangelsi og greiðslu miskabóta fyrir að hafa slegið mann með glerglasi í höfuðið þannig að hann féll í jörðina og haldið svo árásinni áfram á Akureyri í september 2022. 3.4.2025 10:50