Írak
24 25 26 27 ›
Gíslar látnir lausir Uppreisnarmenn hafa látið nokkra gísla lausa í Írak í morgun en þeir eru flestir bílstjórar eða vinna fyrir erlend fyrirtæki sem starfa fyrir Bandaríkjaher. Fyrirtækin hafa í flestum tilfellum lofað að draga starfsemi sína út úr Írak til að fá gíslana lausa. Á meðal þeirra sem látnir hafa verið lausir eru tveir Tyrkir. Erlent 13.10.2005 14:29
Átök í Mósúl í morgun Til harðra átaka kom í borginni Mósúl í Norður-Írak á milli uppreisnarmanna og íröksku lögreglunnar í morgun og hafa átökin nú staðið yfir í nokkra klukkutíma. Samkvæmt upplýsingum frá Reuters-fréttastofunni brutust út átök á fleiri en einum stað í borginni og mátti heyra í það minnsta sex háværar sprengingar. Erlent 13.10.2005 14:29
Blóðbað í Baqouba Ein mannskæðasta sprengjuárás frá innrás Bandaríkjamanna í Írak kostaði 51 óbreyttan borgara lífið í borginni Baqouba í gær. Hryðjuverkaógn vofir yfir fulltrúafundi um næstu helgi sem leggja á grunn að þjóðþingi Íraka. </font /></b /> Erlent 13.10.2005 14:28
Eldflaugarárás nærri Græna svæðinu Að minnsta kosti einn írakskur borgari lést og annar særðist þegar skæruliðar skutu eldflaugasprengju í miðri Bagdad í morgun. Sprengjan lenti nærri „Græna svæðinu“ svokallaða þar sem eru sendiráð Bandaríkjanna og aðsetur íröksku bráðabirgðastjórnarinnar. Nokkrir bílar skemmdust í árásinni en sprengjum hefur ítrekað verið skotið á svæðið. Erlent 13.10.2005 14:27
Egypska embættismanninum sleppt Mannræningjar í Írak slepptu egypskum embættismanni úr haldi í gær. Utanríkisráðherra Egypta segir manninn við góðu heilsu en honum var rænt á föstudag þegar hann var að ganga út úr bænahúsi. Erlent 13.10.2005 14:27
Ættingjar gísls hótuðu drápum Sex Írakar særðust er sprengja sprakk í borginni Fallujah í Írak í dag. Vígamenn eru grunaðir um verknaðinn. Hryðjuverkamenn hafa hótað árásum á veginum milli Jórdaníu og Íraks en mesta umferðin þar á milli er á vegum Bandaríkjahers. Talið er að þetta sé sami hópur og rændi jórdönsku bílstjórunum í gær. Erlent 13.10.2005 14:27
Háttsettur Íraki myrtur Þrír létust í sjálfsmorðsárásum í borginni Mósúl í Írak í morgun og háttsettur embættismaður var myrtur á heimili sínu í Bagdad. Árásum í Írak fer fjölgandi. Erlent 13.10.2005 14:27
Dráp og mannrán halda áfram Vígamenn í Írak drápu átta manns í dag, þar á meðal háttsettan embættismann úr innanríkisráðuneytinu. Ekkert lát er á mannránum en tveimur Jórdönum og tveimur Pakistönum var rænt í dag til viðbótar við þá sjö gísla sem hafa setið í haldi í rúma viku. Erlent 13.10.2005 14:27
13 skæruliðar drepnir Varnarliðsmenn í Írak drápu þrettán skæruliða í hörðum bardögum utan við borgina Baquba í morgun. Skæruliðarnir réðust til atlögu með sprengjuvörpum og handsprengjum á varnarliðsmenn þar sem þeir aðstoðuðu bandaríska hermenn við að brjóta á bak aftur skyndiáhlaup í Baquba. Erlent 13.10.2005 14:27
Pyntingatól í Írak Pyntingartól sem Údei Hussein notaði til að refsa íþróttamönnum í stjórnartíð Saddams, föður hans, voru höfð til sýnis á þjóðarleikvangi Íraka í Bagdad í gær. Þetta var gert í tilefni Ólympíuleikanna sem haldnir verða í næsta mánuði til að minna á að ógnarstjórnin sé liðin undir lok. Erlent 13.10.2005 14:27
Áströlum og Írökum hótað Ástralíu og Ítalíu hafa borist hótanir um hryðjuverk frá samtökum, sem talin eru tengjast Al-Kaída, flytji löndin ekki heri sína heim frá Írak. Utanríkisráðherra Ástralíu segist taka hótunina alvarlega en ekki komi til greina að láta undan kröfum hryðjuverkamanna. Erlent 13.10.2005 14:27
Engar framfarir án öryggis Efnahagslíf Íraka hefur ekki enn tekið við sér, fimmtán mánuðum eftir fall Saddams Hussein. Áhugi erlendra fjárfesta er til staðar en þeir halda að sér höndum vegna óaldar sem ríkir í landinu. Erlent 13.10.2005 14:27
Embættismanni rænt í Írak Skæruliðar í Írak tóku í dag háttsettan egypskan embættismann í gíslingu. Þetta er í fyrsta skipti sem erlendum embættismanni er rænt í Írak. Erlent 13.10.2005 14:27
Embættismanni rænt í Írak Háttsettur embættismaður frá Egyptalandi er nú í haldi írakskra skæruliða ásamt sjö öðrum gíslum. Egyptinn, Momdoh Kotb að nafni, er einn af aðalerindrekum Egypta í Írak og segjast skæruliðarnir hafa tekið hann í gíslingu vegna tilboðs Egypta um að hjálpa til við öryggismál í landinu. Erlent 13.10.2005 14:26
Árásir í Írak Bandaríski flugherinn gerði árás á uppreisnarmenn í borginni Fallujah í Írak í morgun. Að sögn sjónarvotta særðust fimm óbreyttir borgarar í árásinni, þar á meðal börn. Þá létust tveir bandarískir hermenn í sprengingu í morgun nálægt borginni Samarra og Íraki var skotinn til bana í Mósul en hann starfaði fyrir Bandaríkjaher. Erlent 13.10.2005 14:26
Segist koma heim bráðlega Filipeyskur gísl, í Írak, hefur sent fjölskyldu sinni myndbandsspólu af sér, þar sem hann segist koma heim bráðlega. Hann þakkaði jafnframt ríkisstjórn Filipseyja fyrir að hraða brottflutningi hermanna sinna frá Írak. Erlent 13.10.2005 14:25
Ellefu létust í Bagdad Ellefu létust og tugir særðust í öflugri sprengingu í miðborg Bagdad, höfuðborgar Íraks, í gær. Erlent 13.10.2005 14:24